Nýja svið

Um­búða­laust Festi­val

Sýningu lokið

Upp­lýs­ing­ar

Svið

Nýja svið

Verð

Nú gefst áhorfendum það einstaka tækifæri að sjá öll þrjú Umbúðalausu verkefni síðasta leikárs á einu kvöldi.

Umbúðalaust verkefnið hlaut Sprota ársins á Grímunni 2022.

Á vísum stað

Í geymslum liggja hlutir í dvala, en eru þó á vísum stað. Allir hlutir í geymslum eiga sér sögu og þá gildir einu hvort geymslurnar eru vel skipulagðar IKEA hillur eða rykfallnir skúrar, hvort umræddur hlutur vekur upp fortíðarþrá eða samviskubit, hvort hann kostaði 25 krónur árið 1972 eða 25.000 krónur árið 2021. Enginn veit lengur hvaða hlutir leynast í sumum kössum, samt var einhvern tíma tekin ákvörðun um að geyma þá. Hafa hlutir í geymslum ennþá gildi? Er gildið þá fjárhagslegt, sagnfræðilegt eða jafnvel tilfinningalegt? Getur geymsla orðið safn?

How to make love to a man

Það hættulegasta í heiminum er niðurlægður karlmaður. Sviðslistahópurinn Toxic Kings leggur til atlögu við eitraða karlmennsku og þá löngun sem blundar í flestum ef ekki öllum karlmönnum að vera rómansaðir upp úr skónum, með kertum, blómum og kósíheitum, bubblubaði og Barry White. Eru karlmenn stundum bara pínulitlir í sér og vilja vera pússíkallar heima?

Femcon

Komið á Femcon og breytið öllu við ykkur sjálfar! Skilgreinir þú þig sem konu og vilt efla sjálfa þig í vinnu og einkalífi? Viltu vera framkvæmdarstýra í eigin lífi? Ertu algjör gólfmotta og vilt læra að vera meiri tussa við fólkið í kringum þig? Hleyptu þá út þinni innri gyðju. Þrjár konur hafa þróað óskeikula aðferð til þess að þú getir orðið besta mögulega útgáfan af sjálfri þér. Loksins kemur femínisminn að almennilegu gagni til að við konur fáum sem mest út úr honum.

Listrænir stjórnendur

Höfundar / þátttakendur Á vísum stað

Bryndís Ósk Þ. Ingvarsdóttir / Eygló Höskuldsdóttir Viborg / Laufey Haraldsdóttir

Höfundar / þátttakendur How to make love to a man

Andrés P. Þorvaldsson / Ari Ísfeld Óskarsson / Helgi Grímur Hermannsson / Tómas Helgi Baldursson

Höfundar / þátttakendur FemCon

Hekla Elísabet Aðalsteinsdóttir / Rebecca Scott Lord / Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir

Heim

Listabraut 3

103 Reykjavík

Kt. 420269-6849

Miðasala: 568 8000

midasala@borgarleikhus.is
Skrifstofa: 568 5500

Fyrirspurnir: borgarleikhus@borgarleikhus.is

Miðasalan er opin 12-17 alla virka daga og 12-20 á sýningardögum. 568 8000
jafnlaunavottun 2023-2026

Takk fyrir stuðninginn

Borgarleikhúsið er rekið með sérstökum rekstrarsamningi við Reykjavíkurborg sem gerir okkur kleift að halda áfram að bjóða landsmönnum upp á kraftmikið og skapandi leikhús.

reykjavíkurborg logo
orkusalan logoölgerðin logo