Um­búða­laust / Í frétt­um er þetta helst

Sýningu lokið

Upp­lýs­ing­ar

Verð

Fréttaútsendingar eiga minni í þjóðarsál Íslendinga. Leikmyndirnar og stefin endurspegla tíðaranda hvers tíma, og ógjörningur að finna sannari spegil á samtímann en nýjasta fréttatímann. Fréttir eru sannleikur, og flutningur á þeim sannasti performansinn, enda ekki um neinn leik né lygi að ræða heldur hlutlausa miðlun upplýsinga. Eða hvað? Hvað leynist handan myndavélarinnar? Af hverju talar fréttaþulurinn svona skringilega? Eru þessar fréttir allar eins skrifaðar? Eru þessar endalausu sjónvarpsútsendingar kannski að renna sitt skeið? Erum við orðin dofin?

Sviðslistahópurinn BEIN ÚTSENDING ætlar að gera þessum óljósu mörkum sannleikans og sviðssetningarinnar skil með því að rannsaka hina performatívu eiginleika fréttaflutnings; fagurfræði, form, aðferðir og umgjörð. Niðurstöður hópsins verða kynntar fyrir áhorfendum á sviði, í beinni útsendingu, þar sem allt er undir og ekkert má klikka.

Í fréttum er þetta helst er partur af Umbúðalausu verkefni Borgarleikhússins þar sem markmiðið er að styrkja grasrótarstarf í íslensku sviðslistalífi og efla tengsl nýrra sviðshöfunda við áhorfendur.

Kæru landsmenn, í fréttum er þetta helst.

Listrænir stjórnendur

Höfundar / þátttakendur

Annalísa Hermannsdóttir

Hákon Örn Helgason

Katrín Helga Ólafsdóttir

Magnús Thorlacius

Heim

Listabraut 3

103 Reykjavík

Kt. 420269-6849

Miðasala: 568 8000

midasala@borgarleikhus.is
Skrifstofa: 568 5500

Fyrirspurnir: borgarleikhus@borgarleikhus.is

Miðasalan er opin 12-17 alla virka daga og 12-20 á sýningardögum. 568 8000
jafnlaunavottun 2023-2026

Takk fyrir stuðninginn

Borgarleikhúsið er rekið með sérstökum rekstrarsamningi við Reykjavíkurborg sem gerir okkur kleift að halda áfram að bjóða landsmönnum upp á kraftmikið og skapandi leikhús.

reykjavíkurborg logo
orkusalan logoölgerðin logo