Stóra svið

Vanja frændi

Sýningu lokið

Upp­lýs­ing­ar

Svið

Stóra svið

Lengd

2:30 klst

Verð

Prófessor nokkur kemur á sveitasetur látinnar eiginkonu sinnar með seinni konu sína, hina ungu og ómótstæðilegu Jelenu. Dóttir prófessorsins af fyrra hjónabandi og Vanja, bróðir fyrri konunnar, hafa lagt á sig ómælda vinnu í gegnum tíðina við að sinna búinu. En nú er prófessorinn orðinn gamall, hefur allt á hornum sér og hyggur á róttækar breytingar. Örvænting og vonleysi heltekur Vanja því átakamikið uppgjör er óumflýjanlegt.

Vanja frændi er eitt af stóru meistaraverkum Antons Tsjekhovs og af mörgum talið það skemmtilegasta. Þrátt fyrir brostnar vonir og sorg er það stútfullt af húmor og náttúrulegum léttleika. Hér takast á mismunandi viðhorf til lífsins; vellystingar og græðgi á móti umhyggju fyrir jörðinni og náttúrunni. Hvernig eigum við að lifa áfram þegar sársaukafullur sannleikurinn um tilgang okkar og stöðu blasir við? Vanja frændi er eitt af mest leiknu leikritum Tsjékhovs og birtist hér í leikstjórn Brynhildar Guðjónsdóttur sem stýrði hinni vinsælu sýningu, Ríkharður III, á síðasta leikári.

Frumsýning 11. janúar 2020 á Stóra sviði Borgarleikhússins.

Leikarar

Arnar Dan Kristjánsson

Halldór Gylfason

Hilmir Snær Guðnason

Jóhann Sigurðarson

Katrín Halldóra Sigurðardóttir

Margrét Helga Jóhannsdóttir

Sigrún Edda Björnsdóttir

Unnur Ösp Stefánsdóttir

Valur Freyr Einarsson

Listrænir stjórnendur

Höfundur

Anton Tsjékhov

Þýðing

Gunnar Þorri Pétursson

Leikstjórn

Brynhildur Guðjónsdóttir

Leikmynd

Börkur Jónsson

Búningar

Filippía Elísdóttir

Lýsing

Björn Bergsteinn Guðmundsson

Tónlist

Bjarni Frímann Bjarnason

Leikgervi

Elín Sigríður Gísladóttir

Hljóð

Þórður Gunnar Þorvaldsson

Heim

Listabraut 3

103 Reykjavík

Kt. 420269-6849

Miðasala: 568 8000

midasala@borgarleikhus.is
Skrifstofa: 568 5500

Fyrirspurnir: borgarleikhus@borgarleikhus.is

Miðasalan er opin 12-17 alla virka daga og 12-20 á sýningardögum. 568 8000
jafnlaunavottun 2023-2026

Takk fyrir stuðninginn

Borgarleikhúsið er rekið með sérstökum rekstrarsamningi við Reykjavíkurborg sem gerir okkur kleift að halda áfram að bjóða landsmönnum upp á kraftmikið og skapandi leikhús.

reykjavíkurborg logo
orkusalan logoölgerðin logo