Litla svið

Veg­bú­ar

Sýningu lokið

Upp­lýs­ing­ar

Svið

Litla svið

Verð

Tónlistarmaðurinn KK stígur á svið og segir sögu gítaranna sinna sem hafa fylgt honum í blíðu og stríðu í gegnum árin. Hann greinir frá uppruna þeirra og sérstökum tengslum sínum við hvern og einn þeirra - allir tengjast þeir á einn eða annan hátt skrautlegu lífi og örlögum erlendra trúbadora sem áttu það sameiginlegt að þrá réttlæti og frelsi. í verkinu tvinnast þessar sögur saman við lífshlaup KK sjálfs, spurt er um mikilvægi tónlistarinnar, mátt hennar í hörðum heimi og leitina eilífu að hinum „eina sanna tóni“. KK slær á sína alkunnu strengi og fer með áhorfendur í ógleymanlegt ferðalag.

Jón Gunnar Þórðarson (1980) útskrifaðist með BA gráðu í leikstjórn frá Drama Centre í London. Hann hefur leikstýrt tugum verka hér heima og erlendis og unnið sem aðstoðarleikstjóri hjá Royal Shakespeare Company og Vesturporti. Þá hefur hann skrifað og staðfært fjölda verka.

Kristján Kristjánsson KK (1956) er með þekktustu tónlistarmönnum landsins. Hann hefur samið lög og leikið inn á hljómplötur og geisladiska um áratugaskeið og unnið til yfir tuttugu gull og platínuverðlauna fyrir tónlist sína. Hann samdi tónlistina við leikrit John Steinbecks Þrúgur reiðinnar og Fjölskylduna sem bæði slógu aðsóknarmet í Borgarleikhúsinu.

Frumsýning 15. október 2015 á Litla sviði Borgarleikhússins.

Leikarar

Kristján Kristjánsson / KK

Listrænir stjórnendur

Höfundar

Jón Gunnar Þórðarson / KK

Leikstjóri

Jón Gunnar Þórðarson

Leikmynd / búningar

Móeiður Helgadóttir

Lýsing

Magnús Helgi Kristjánsson

Tónlist

KK

Hljóð

Garðar Borgþórsson

Myndvinnsla

Roland Hamilton

Sýningarstjóri

Þórey Selma Sverrisdóttir

Heim

Listabraut 3
103 Reykjavík
Kt. 420269-6849
Miðasala: 568 8000
midasala@borgarleikhus.is
Skrifstofa: 568 5500

Fyrirspurnir: borgarleikhus@borgarleikhus.is

Jafnlaunavottun 2023-2026
Jafnvægisvog FKA 2025
Framúrskarandi fyrirtaeki 2025

Miðasalan er opin 12-17 alla virka daga og 12-20 á sýningardögum.

568 8000

Takk fyrir stuðninginn

Borgarleikhúsið er rekið með sérstökum rekstrarsamningi við Reykjavíkurborg sem gerir okkur kleift að halda áfram að bjóða landsmönnum upp á kraftmikið og skapandi leikhús.

reykjavíkurborg logo
orkusalan logoölgerðin logo