Stóra svið

Veisla

Sýningu lokið

Upp­lýs­ing­ar

Svið

Stóra svið

Lengd

1:30 klst

Verð

Þjóðin er orðin veisluþyrst og Veisla er kærkomin vökvun eftir langa þurrð.

Á meðan heimsfaraldri stendur komst þjóðin ekki í neina stóra veislu. Hugsa sér öll afmælin sem enginn gat mætt í, árshátíðirnar, útskriftarveislurnar, brúðkaupin, kóramótin og matarboðin. Að ekki sé minnst á alla óbökuðu heitu brauðréttina og kransakökurnar sem aldrei voru snæddar eða freyðivínið sem aldrei var dreypt á úr plastglösum á völtum fæti. Þá eru ótalin löngu trúnóin við hálfókunnugar konur, slúður um valdamikið fólk, hátt spiluð lög og grillaðar pylsur á miðnætti. Þjóðin á inni risa summu í Gleðibankanum og við bjóðum áhorfendum í allt sem þeir hafa misst af í einni stórkostlegri Veislu í Borgarleikhúsinu.

Hér sameina krafta sína þau Bergur Þór Ingólfsson, þaulreyndur leikhúsmaður og Saga Garðarsdóttir, fyndlistakona, en síðast unnu þau saman við hina geysivinsælu sýningu Kenneth Mána sem frumsýnd var á Litla sviði Borgarleikhússins árið 2014. Partýpinninn Berndsen gerir tónlistina og Veisla verður því bragðgóð en görótt blanda af grínsketsum sem leikhópurinn skrifar saman og tónlist sem svarar áleitnum spurningum á borð við hvort tartalettur séu góðar í alvörunni og hversu hratt skuli ganga um gleðinnar dyr.

Frumsýning 14. maí 2021 á Stóra sviði Borgarleikhússins.

Leikarar

Ásthildur Úa Sigurðardóttir

Björn Stefánsson

Halldór Gylfason

Katla Margrét Þorgeirsdóttir

Saga Garðarsdóttir

Sigrún Edda Björnsdóttir

Sigurður Þór Óskarsson

Listrænir stjórnendur

Yfirumsjón með handriti

Saga Garðarsdóttir

Höfundar

Saga Garðarsdóttir / Katla Margrét Þorgeirsdóttir / Sigrún Edda Björnsdóttir / Sigurður Þór Óskarsson / Halldór Gylfason

Leikstjórn

Bergur Þór Ingólfsson

Leikmynd / búningar

Eva Signý Berger

Lýsing

Ingi Bekk

Upptökustjórn / útsetningar

Þórður Gunnar Þorvaldsson

Tónlist

Davíð Berndsen

Danshöfundur

Unnur Elísabet Gunnarsdóttir

Leikgervi

Guðbjörg Ívarsdóttir

Lög úr sýningunni
Heim

Listabraut 3

103 Reykjavík

Kt. 420269-6849

Miðasala: 568 8000

midasala@borgarleikhus.is
Skrifstofa: 568 5500

Fyrirspurnir: borgarleikhus@borgarleikhus.is

Miðasalan er opin 12-17 alla virka daga og 12-20 á sýningardögum. 568 8000
jafnlaunavottun 2023-2026

Takk fyrir stuðninginn

Borgarleikhúsið er rekið með sérstökum rekstrarsamningi við Reykjavíkurborg sem gerir okkur kleift að halda áfram að bjóða landsmönnum upp á kraftmikið og skapandi leikhús.

reykjavíkurborg logo
orkusalan logoölgerðin logo