Nýja svið

Við erum veðr­ið

Upp­lýs­ing­ar

Svið

Nýja svið

Verð

8 kr.

Næstu sýningar

Íslenski Dansflokkurinn16. apríl kl. 20:00
Íslenski Dansflokkurinn24. apríl kl. 20:00
Íslenski Dansflokkurinn02. maí kl. 20:00
Íslenski Dansflokkurinn05. maí kl. 20:00
Allar sýningar

Við erum veðr­ið

Við erum veðrið er nýtt verk eftir danshöfundinn Báru Sigfúsdóttur fyrir Íslenska dansflokkinn.

Verkið rannsakar þau ósýnilegu öfl sem tengja okkur saman, á milli líkama og huga og á milli innri og ytri vitundar. Í verkum sínum hefur Bára um árabil rannsakað samband manns og náttúru. Að þessu sinni beinist sjónum inn á við og að því hvernig tengsl okkar hvert við annað móta okkar innra landslag.

Á sviðinu ferðast hópur dansara og fjölmennur kór saman um síbreytileg ástand nálægðar, fjarlægðar og sameiginlegs takts. Þau standa af sér veðrin saman, eða verða jafnvel veðrið sjálft. Raddir og líkamar fléttast saman og móta hvert annað í sífellu. Líkt og veður sem fer yfir landslag skilur hver viðureign eftir sig ummerki. Saman verða þau hvert öðru skjól, næring og jarðvegur.

Sviðsmyndin umbreytist og máist smám saman í gegnum verkið og endurspeglar þannig viðkvæmt og síkvikt eðli tengsla.

Við erum veðrið býður áhorfendum að velta fyrir sér hvernig við höfum áhrif hvert á annað og hvernig við, í sameiningu, verðum að því veðri sem við búum við.

Bára Sigfúsdóttir er íslenskur danshöfundur og dansari með aðsetur í Noregi. Hún nam samtímadans við Listaháskóla Íslands, Amsterdam School of the Arts og P.A.R.T.S. í Brussel, þar sem hún lagði áherslu á hreyfirannsóknir, spunavinnu og danssmíðar. Verk hennar hafa verið sýnd víða um Evrópu á hátíðum og sviðum á borð við ICE HOT, Tanzmesse, Performatik og Julidans.

Í verkum sínum vinnur Bára með marglaga hreyfiefni sem þróast út frá spuna, takti og nákvæmri vinnu með einstaka líkamshluta. Hún hefur um árabil fjallað um tengsl mannsins við náttúru, samfélag og umhverfi sitt og leitast við að skapa verk sem eru bæði myndræn, aðgengileg og hugsandi.

Meðal þekktustu verka hennar eru The Lover, TIDE, being og FLÆÐI. Árið 2019 hlaut hún bæði verðlaun sem danshöfundur ársins og dansari ársins á Grímunni fyrir verk sitt The Lover.

Heim

Listabraut 3
103 Reykjavík
Kt. 420269-6849
Miðasala: 568 8000
midasala@borgarleikhus.is
Skrifstofa: 568 5500

Fyrirspurnir: borgarleikhus@borgarleikhus.is

Jafnlaunavottun 2023-2026
Jafnvægisvog FKA 2025
Framúrskarandi fyrirtaeki 2025

Miðasalan er opin 12-17 alla virka daga og 12-20 á sýningardögum.

568 8000

Takk fyrir stuðninginn

Borgarleikhúsið er rekið með sérstökum rekstrarsamningi við Reykjavíkurborg sem gerir okkur kleift að halda áfram að bjóða landsmönnum upp á kraftmikið og skapandi leikhús.

reykjavíkurborg logo
orkusalan logoölgerðin logo