Litla svið

Vís­inda­sýn­ing Villa

Sýningu lokið

Upp­lýs­ing­ar

Svið

Litla svið

Verð

Villi og Vala bregða á leik með tilraunaglösin sín á Litla sviði Borgarleikhússins, gera ótrúlegar uppgötvanir og útskýra fyrir okkur mögnuð fyrirbæri úr heimi vísindanna. Hvað er rafmagn? Hvað er hljóð? Hvað er blóð og bein?

Öll börn þekkja Vísinda-Villa og uppátæki hans í sjónvarpinu. Villi hefur oft bjargað sjálfum sér og vinum sínum úr vanda með alls konar uppfinningum enda hefur hann brennandi áhuga á vísindum. Uppáhaldsspurningin hans er: „Af hverju?“

Nú stígur Vísinda-Villi á svið Borgarleikhússins í fyrsta sinn og fer með áhorfendur í æsispennandi ferðalag um heim vísindanna. Með honum er hún Vala sem hefur ráð undir rifi hverju og fer létt með að leysa óyfirstíganleg vandamál. Ekkert er þeim óviðkomandi hvort sem um er að ræða svarthol, atóm, köngulær, tré, blóð, heimspeki eða stjörnuhimininn svo eitthvað sé nefnt. Þau gera tilraunir og útskýra hluti, fá út óvæntar niðurstöður og spyrja spurninga sem engum hefði dottið í hug að spyrja - hvað þá að fá svör við

Frumsýning 4. febrúar 2017 á Litla sviði Borgarleikhússins.

Leikarar

Vala Kristín Eiríksdóttir

Vilhelm Anton Jónsson

Listrænir stjórnendur

Höfundar

Vignir Rafn Valþórsson / Vilhelm Anton Jónsson

Leikstjórn

Vignir Rafn Valþórsson

Leikmynd / búningar

Sigríður Sunna Reynisdóttir

Lýsing

Magnús Helgi Kristjánsson

Tónlist

Vilhelm Anton Jónsson

Leikgervi

Margrét Benediktsdóttir

Heim

Listabraut 3
103 Reykjavík
Kt. 420269-6849
Miðasala: 568 8000
midasala@borgarleikhus.is
Skrifstofa: 568 5500

Fyrirspurnir: borgarleikhus@borgarleikhus.is

Jafnlaunavottun 2023-2026
Jafnvægisvog FKA 2025
Framúrskarandi fyrirtaeki 2025

Miðasalan er opin 12-17 alla virka daga og 12-20 á sýningardögum.

568 8000

Takk fyrir stuðninginn

Borgarleikhúsið er rekið með sérstökum rekstrarsamningi við Reykjavíkurborg sem gerir okkur kleift að halda áfram að bjóða landsmönnum upp á kraftmikið og skapandi leikhús.

reykjavíkurborg logo
orkusalan logoölgerðin logo