
Að tjaldabaki er ný röð viðburða hjá Borgarleikhúsinu í vetur þar sem leikstjórar sýninga ásamt listrænum stjórnendum taka á móti leikhúsgestum með kynningu áður en sýning hefst. Kynningin fer fram á veitingasvæði Borgarleikhússins og hefst um einni og hálfri klukkustund fyrir sýningu. Leikhúsgestum býðst að kaupa léttan kvöldverð.
Að lokinni sýningu gefst leikhúsgestum kostur á að taka þátt í umræðum með leikstjóra og völdum gestum í afslöppuðu umhverfi á veitingasvæði leikhússins.
Á þessum viðburði fá gestir einstaka innsýn í sköpunarferli sýningarinnar; allt frá hugmyndavinnu, framkvæmd og að sviðssetningu.
Að tjaldabaki fer fram á völdum dagsetningum sem verða kynntar á næstu vikum.
Listabraut 3
103 Reykjavík
Kt. 420269-6849
Miðasala: 568 8000
midasala@borgarleikhus.is
Skrifstofa: 568 5500
Fyrirspurnir: borgarleikhus@borgarleikhus.is
Takk fyrir stuðninginn
Borgarleikhúsið er rekið með sérstökum rekstrarsamningi við Reykjavíkurborg sem gerir okkur kleift að halda áfram að bjóða landsmönnum upp á kraftmikið og skapandi leikhús.