Litla svið

27

Upp­lýs­ing­ar

Svið

Litla svið

Lengd

2 klst. með hléi

Verð

8.950 kr.

Frumsýning

30. október 2026

Næstu sýningar

4. sýning15. nóvember kl. 20:00
5. sýning18. nóvember kl. 20:00
6. sýning20. nóvember kl. 20:00
7. sýning26. nóvember kl. 20:00
Allar sýningar

27

Í hjarta Parísar verður lítil stofa að suðupotti nýrrar listar. Óperan 27 segir hrífandi ástarsögu Gertrude Stein og Alice B. Toklas, tveggja kvenna sem sköpuðu heimili, samfélag og skjól fyrir helstu listamenn tuttugustu aldar. Þar hittast Picasso, Matisse og Hemingway áður en heimurinn þekkir nöfn þeirra – og innan veggjanna takast á ástríða, metnaður, vinátta og hugmyndir sem eiga eftir að breyta listasögunni. Ricky Ian Gordon og Royce Vavrek flétta saman tónlist, húmor og hjartnæma sögusýn í aðgengilegri samtímaóperu um ástina sem lifir af stríð, átök og tímans þunga nið.

Uppsetningin er framleiðsla nýs íslensks óperukompanís sem heitir hinÓperan, en markmið þess er að auka sýnileika hinsegin fólks á óperusviðinu. Sjá nánar á www.hinoperan.is

Óperan 27 er styrkt af Sviðslistasjóði.

Athugið að sýningin er sýnd á ensku með íslenskum texta.

-

In the heart of Paris, a small salon becomes a hub for a new artistic movement. 27 tells the captivating love story of Gertrude Stein and Alice B. Toklas, two women who created a home, a community, and a refuge for some of twentieth century’s greatest artists. Within these walls, Picasso, Matisse, and Hemingway gather before the world knows their names, and passion, ambition, friendship, and ideas collide—ideas that will go on to reshape the history of art.

Composer Ricky Ian Gordon and librettist Royce Vavrek weave together music, humour, and a deeply moving perspective in an accessible contemporary opera about a love that endures war, conflict, and the relentless passage of time.

This production is presented by hinÓperan, a new Icelandic opera company whose mission is to increase the visibility of LGBTQ+ people on the operatic stage. See further information here: www.hinoperan.is

27 is performed in English with Icelandic subtitles.

Listrænir stjórnendur

Tónlistarstjóri

Matthildur Anna Gísladóttir

Leikmynda-og ljósahönnuður

Friðþjófur Þorsteinsson

Búningahönnuður

Andri Unnarsson

Sviðshreyfingar

Cameron Corbett

Leikgervi

Ray Milano

„Tónlist sem er í senn full af lífskrafti, næmni og átökum.“ // “A score that is equal parts effervescence, tenderness, and confrontation.”

Opera Today

„Tónlist Gordons einkennist af lagrænni nálgun sem sækir í það besta í bandarískri óperuhefð.“ // “Gordon’s musical style is highlighted by melodism that strives toward the best of American opera.”

Classical Voice North America

„Heillandi samtímaópera með aðgengilegri, ljóðrænni og lagrænni tónlist. Librettó Royce Vavreks er líflegt og hnyttið en býr jafnframt yfir djúpri næmni.“ // “A delightful contemporary and accessible score--lyrical and melodic, richly orchestrated. The libretto by Royce Vavrek is lively and often witty, with moments of deep tenderness.”

Broadway World Opera

Heim

Listabraut 3
103 Reykjavík
Kt. 420269-6849
Miðasala: 568 8000
midasala@borgarleikhus.is
Skrifstofa: 568 5500

Fyrirspurnir: borgarleikhus@borgarleikhus.is

Jafnlaunavottun 2023-2026
Jafnvægisvog FKA 2025
Framúrskarandi fyrirtaeki 2025

Miðasalan er opin 12-17 alla virka daga og 12-20 á sýningardögum.

568 8000

Takk fyrir stuðninginn

Borgarleikhúsið er rekið með sérstökum rekstrarsamningi við Reykjavíkurborg sem gerir okkur kleift að halda áfram að bjóða landsmönnum upp á kraftmikið og skapandi leikhús.

reykjavíkurborg logo
orkusalan logoölgerðin logo