Fyr­ir­söng­ur fyr­ir upp­færslu á óper­unni 27

13. mars 2026

hinÓperan í samstarfi við Borgarleikhúsið auglýsir fyrirsöngur fyrir uppfærslu á óperunni 27 eftir Ricky Ian Gordon við texta Royce Vavrek. Bjarni Snæbjörnsson leikstýrir óperunni og Matthildur Anna Gísladóttir fer með tónlistarstjórn. Frumsýning verður síðustu helgina í október 2026 á Litla sviðinu.

Leitað er að fjórum söngvurum:

  • Sópran í hlutverk Alice B. Toklas.
  • Tenór í hlutverk Pablo Picasso, F. Scott Fitzgerald o.fl.
  • Barítón í hlutverk Leo Stein, Man Ray o.fl.
  • Bass-barítón í hlutverk Ernest Hemingway, Henri Matisse o.fl.

Við leitum að öflugum og skapandi söngvurum sem hafa áhuga á að taka þátt í metnaðarfullu verkefni þar sem list, saga og hinsegin sýnileiki mætast á sviðinu.

Reyndir óperusöngvarar sem og þeir sem nýlega hafa lokið námi eru hvattir til að sækja um. Við tökum vel á móti umsóknum frá öllum óháð kyni, kynhneigð og/eða kynvitund.

Söngvarar eru beðnir um að senda upptöku og ferilskrá á fyrir miðnætti 22. mars. Óskað er eftir tveimur ólíkum aríum. Að lokinni yfirferð á upptökum verður völdum umsækjendum boðið í fyrirsöng 18. eða 19. apríl í sal Söngskóla Sigurðar Demetz, Ármúla 44.

Í fyrirsöngnum munu söngvarar flytja valda hluta úr óperunni sjálfri og er velkomið að styðjast við nótur.

Nótur má finna í Google Drive möppu.

Upptöku frá heimsfrumsýningunni í St. Louis má finna á Spotify.

Frekari fyrirspurnir eru velkomnar á hinoperan@gmail.com.

Heim

Listabraut 3
103 Reykjavík
Kt. 420269-6849
Miðasala: 568 8000
midasala@borgarleikhus.is
Skrifstofa: 568 5500

Fyrirspurnir: borgarleikhus@borgarleikhus.is

Jafnlaunavottun 2023-2026
Jafnvægisvog FKA 2025
Framúrskarandi fyrirtaeki 2025

Miðasalan er opin 12-17 alla virka daga og 12-20 á sýningardögum.

568 8000

Takk fyrir stuðninginn

Borgarleikhúsið er rekið með sérstökum rekstrarsamningi við Reykjavíkurborg sem gerir okkur kleift að halda áfram að bjóða landsmönnum upp á kraftmikið og skapandi leikhús.

reykjavíkurborg logo
orkusalan logoölgerðin logo