Andreas Wijk og Marsha Songcome dýrk­uðu Moul­in Rou­ge!

27. maí 2026

Sænsku stórstjörnurnar Andreas Wijk og Marsha Songcome komu í Borgarleikhúsið og sáu Moulin Rouge! um síðastliðna helgi. Andreas og Marsha léku hlutverk Satine og Christian í Stokkhólmi og Gautaborg, en sýningin var sýnd 227 sinnum í Svíþjóð fyrir alls 244 þúsund gesti.

Andreas og Marsha voru yfir sig hrifin af uppfærslu Borgarleikhússins og lýstu upplifuninni sem „out of body experience“, enda í fyrsta sinn sem þau upplifðu söngleikinn úr salnum sem áhorfendur. Þetta er jafnframt í fyrsta sinn sem söngleikurinn er bæði leikinn og sunginn á einu og sama tungumáli og var mikið lagt upp úr því að enginn af þeim 59 söngtextum sýningarinnar væri á ensku. Það gríðarstóra verkefni leysti Bragi Valdimar Skúlason af hendi.

Moulin Rouge-hópurinn nálgast nú sumarfríið óðfluga eftir hátt í 100 uppseldar sýningar í vetur. Aðeins sjö sýningar eru eftir, en sýningar í haust eru nú þegar komnar í sölu!

Nánar um Moulin Rouge!

Heim

Listabraut 3
103 Reykjavík
Kt. 420269-6849
Miðasala: 568 8000
midasala@borgarleikhus.is
Skrifstofa: 568 5500

Fyrirspurnir: borgarleikhus@borgarleikhus.is

Jafnlaunavottun 2023-2026
Jafnvægisvog FKA 2025
Framúrskarandi fyrirtaeki 2025

Miðasalan er lokuð vegna sumarleyfa til miðvikudagsins 19. ágúst

568 8000

Takk fyrir stuðninginn

Borgarleikhúsið er rekið með sérstökum rekstrarsamningi við Reykjavíkurborg sem gerir okkur kleift að halda áfram að bjóða landsmönnum upp á kraftmikið og skapandi leikhús.

reykjavíkurborg logo
orkusalan logoölgerðin logo