Aug­lýst eft­ir leik­skáldi Borg­ar­leik­húss­ins 2027/2028

3. september 2026

Leikritunarsjóður Leikfélags Reykjavíkur auglýsir eftir leikskáldi Borgarleikhússins.

Gert er ráð fyrir að leikskáld Borgarleikhússins starfi við leikhúsið á tímabilinu 1. janúar 2027 til 30. júní 2028. Unnið skal að ritun leikverks á tímabilinu sem hugsað er til sviðsetningar í Borgarleikhúsinu.

Að þessu sinni kallar stjórn Leikritunarsjóðs eftir hugmyndum að verkum fyrir börn og unglinga á smærra sviði. Borgarleikhúsið hefur áhuga á nýjum sviðsverkum sem taka unga áhorfendur alvarlega, mæta þeim af hugrekki og listrænum metnaði og skapa rými fyrir fjölbreyttar raddir, reynsluheima og frásagnir.

Stjórn sjóðsins velur leikskáld úr hópi umsækjenda sem býðst samningur við Borgarleikhúsið, sem felur í sér 12 mánaðarlaun sem taka mið af starfslaunum listamanna og hægt er að dreifa yfir 18 mánuði samningstímans. Skáldið fær aðstöðu í leikhúsinu, vinnur þar á samningstímanum og verður hluti af starfsliði Borgarleikhússins. Það nýtur jafnframt aðstoðar, leiðsagnar og stuðnings leikhússtjóra og dramatúrga við þróun verksins.

Umsókn skal innihalda:

  • Nafn, kennitölu, heimilisfang, netfang og símanúmer.
  • Ferilskrá
  • Sýnishorn af leikrænum texta (8–10 blaðsíður)
  • Hugmynd að leikverki sem markmiðið er að vinna á samningstímanum.

Einnig er heimilt að láta annað fylgja með sem umsækjandi telur að eigi erindi með umsókninni.

Umsóknir og fyrirspurnir skulu sendar í tölvupósti á leikritun@borgarleikhus.is. Umsóknarfrestur er til 1. nóvember 2026.

Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál. Stjórn leikritunarsjóðsins áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.

Heim

Listabraut 3
103 Reykjavík
Kt. 420269-6849
Miðasala: 568 8000
midasala@borgarleikhus.is
Skrifstofa: 568 5500

Fyrirspurnir: borgarleikhus@borgarleikhus.is

Jafnlaunavottun 2023-2026
Jafnvægisvog FKA 2025
Framúrskarandi fyrirtaeki 2025

Miðasalan er opin 12-17 alla virka daga og 12-20 á sýningardögum.

568 8000

Takk fyrir stuðninginn

Borgarleikhúsið er rekið með sérstökum rekstrarsamningi við Reykjavíkurborg sem gerir okkur kleift að halda áfram að bjóða landsmönnum upp á kraftmikið og skapandi leikhús.

reykjavíkurborg logo
orkusalan logoölgerðin logo