Barna­menn­ing­ar­há­tíð í Borg­ar­leik­hús­inu

20. apríl 2026

Borgarleikhúsið er stoltur þátttakandi í Barnamenningarhátíð í Reykjavík og býður upp á tvo skemmtilega gjaldfrjálsa viðburði í samvinnu við hátíðina.


Krakkar skrifa leikrit
23. apríl kl.13:00 

Skemmtileg fjölskyldusýning á Nýja sviði Borgarleikhússins sem samanstendur af tveimur stuttum leikritum eftir börn sem unnu handritasamkeppni Sagna í ár. Árlega er skorað á krakka á aldrinum 8-12 ára til að taka þátt og senda inn handrit. Borgarleikhúsið velur verkin sem sett eru á svið af útskriftarnemendum Leiklistarskóla Borgarleikhússins.Aðgangur er ókeypis en panta þarf miða á heimasíðu Borgarleikhússins.

Skoða/sækja miða: https://www.borgarleikhus.is/syningar/krakkar-skrifa-leikrit-2026


Krakkar kenna krökkum, leiklistarsmiðja
26.apríl kl.14:30

90 mínútna leiklistarnámskeið fyrir börn á aldrinum 8-11 ára undir leiðsögn útskrifaðra nemenda úr Leiklistarskóla Borgarleikhússins og meðlimum ungmennaráðs Borgarleikhússins. Á námskeiðinu verður lögð áhersla á leikgleði þar sem krakkarnir leiða skapandi leiklistaræfingar sem henta vel byrjendum í leiklist. Aðgangur er ókeypis en vegna fjöldatakmarkana í smiðjuna er nauðsynlegt að skrá sig í gegnum Abler.

Skráning: https://www.abler.io/shop/leiklistarskoli/1

Heim

Listabraut 3
103 Reykjavík
Kt. 420269-6849
Miðasala: 568 8000
midasala@borgarleikhus.is
Skrifstofa: 568 5500

Fyrirspurnir: borgarleikhus@borgarleikhus.is

Jafnlaunavottun 2023-2026
Jafnvægisvog FKA 2025
Framúrskarandi fyrirtaeki 2025

Miðasalan er lokuð vegna sumarleyfa til miðvikudagsins 19. ágúst

568 8000

Takk fyrir stuðninginn

Borgarleikhúsið er rekið með sérstökum rekstrarsamningi við Reykjavíkurborg sem gerir okkur kleift að halda áfram að bjóða landsmönnum upp á kraftmikið og skapandi leikhús.

reykjavíkurborg logo
orkusalan logoölgerðin logo