Björg­vin Franz er Trölli!

27. apríl 2026

Björgvin Franz verður Trölli

Nýlega svipti Borgarleikhúsið hulunni af því hver mun fara með hlutverk Trölla (The Grinch) í fjölskyldusöngleiknum Þegar Trölli stal jólunum, sem verður frumsýndur á Stóra sviðinu í nóvember næstkomandi. En það er leikarinn Björgvin Franz Gíslason sem mun fara með þetta burðarhlutverk í jólaævintýrinu sívinsæla.

Björgvin Franz er Íslendingum að góðu kunnur, en hann hefur lengi verið einn fremsti leikari þjóðarinnar. Hann fer um þessar mundir með hlutverk Elsu Lund í Þetta er Laddi og Tinkarlsins í Galdrakarlinum í Oz. Þá fór hann með eitt af aðalhlutverkum í hinni vinsælu sýningu Elly, sem gekk fjögur leikár Borgarleikhúsinu. Björgvin Franz hefur margoft verið tilnefndur til Grímuverðlauna fyrir hlutverk sín og árið 2023 hlaut hann Grímuverðlaunin sem söngvari ársins. Hann mun nú feta í fótspor leikarana Jim Carrey og Stefáns Karls Stefánssonar, sem báðir fóru með hlutverk Trölla/Grinch.

Í aðalhlutverkum sýningarinnar verða einnig Hilmir Jensson, sem sögumaður og Pétur Ernir Svavarsson sem Max, hundur Trölla. Pétur hefur nýlega vakið mikla athygli fyrir hlutverk sitt sem Baby Doll í Moulin Rouge! söngleiknum. Þeir þrír, Pétur, Hilmir og Björgvin Franz, leika jafnframt saman hjartnæma tríóið Ljónið, Fuglahræðuna og Tinkarlinn í Galdrakarlinum í Oz.

Í öðrum hlutverkum verða Björn Stefánsson, Esther Talía Casey, Halldór Gylfason, Sigrún Edda Björnsdóttir og Þórunn Arna Kristjánsdóttir. Dansarar sýningarinnar eru Birna Karlsdóttir, Björn Dagur Bjarnason, Gabriel Marling Rideout, Karen Sif Kamgan, Karitas Lotta Tulinius og Rúnar Bjarnason.

Leikstjórn verður í höndum Vals Freys Einarssonar. Auk þessa glæsilega leikhóps mun einnig stór barnahópur vera með í sýningunni, en yfir 1100 börn skráðu sig í leikprufurnar, sem fara fram í maí.

Um söngleikinn Þegar Trölli stal jólunum

Söngleikurinn Þegar Trölli stal jólunum er byggður á hinu sívinsæla ævintýri Dr. Seuss frá árinu 1957 og hefur lengi notið mikilla vinsælda um allan heim. Sagan hefur verið útfærð á ótal vegu en þekktasta útfærslan er líklega kvikmyndin How the Grinch stole Christmas sem kom út árið 2000 og skartaði gamanleikaranum og stjórstjörnunni Jim Carrey í hlutverki Trölla (Grinch).

Trölli lifir einmana lífi með hjarta sem er „tveimur stærðum of lítið”. Hann þolir ekki jólin en í næsta bæ eru þau haldin hátíðleg með söng, gjöfum og kræsingum, Trölla til mikils ama. Eitt árið tekur hann sig til og reynir að stela jólunum í skjóli nætur, með því að fjarlægja allt sem á þau minnir. Þegar jólasöngvar hljóma enn morguninn eftir kemst Trölli að því að jólin felast ekki í veraldlegum hlutum - heldur í hjörtum fólks.

Heim

Listabraut 3
103 Reykjavík
Kt. 420269-6849
Miðasala: 568 8000
midasala@borgarleikhus.is
Skrifstofa: 568 5500

Fyrirspurnir: borgarleikhus@borgarleikhus.is

Jafnlaunavottun 2023-2026
Jafnvægisvog FKA 2025
Framúrskarandi fyrirtaeki 2025

Miðasalan er opin 12-17 alla virka daga og 12-20 á sýningardögum.

568 8000

Takk fyrir stuðninginn

Borgarleikhúsið er rekið með sérstökum rekstrarsamningi við Reykjavíkurborg sem gerir okkur kleift að halda áfram að bjóða landsmönnum upp á kraftmikið og skapandi leikhús.

reykjavíkurborg logo
orkusalan logoölgerðin logo