Borg­ar­leik­hús­ið hlýt­ur flest­ar til­nefn­ing­ar til Grím­unn­ar

19. maí 2025

Tilnefningar til Grímunnar, íslensku sviðslistaverðlaunanna, voru tilkynntar við hátíðlega athöfn í Tjarnarbíó í dag. Sýningar í Borgarleikhúsinu hlutu langflestar tilnefningar, alls 38 talsins. Þar af voru fjögur af fimm verkum sem tilnefnd eru sem leiksýning ársins sýnd í Borgarleikhúsinu: Sýslumaður Dauðans, Köttur á heitu blikkþaki, Ungfrú Ísland og Innkaupapokinn í uppsetningu leikhópsins Kriðpleir.

„Það er ómetanlegt að sjá starf vetrarins hljóta slíka viðurkenningu,“ segir Egill Heiðar Pálsson leikhússtjóri Borgarleikhússins. „Þetta leikár ber skýrt merki um listræna sýn Brynhildar Guðjónsdóttur og þann kraft sem býr í starfsmannahópi Borgarleikhússins. Ég er stoltur og þakklátur fyrir að taka við keflinu á þessum merka tímapunkti.“

Leiksýningin Ungfrú Ísland, sem byggir á verðlaunaskáldsögu Auðar Övu, hlaut flestar tilnefningar af sýningum Borgarleikhússins, alls níu talsins, þar á meðal fyrir sýningu ársins. Gréta Kristín Ómarsdóttir er tilnefnd sem leikstjóri ársins, Birna Pétursdóttir sem leikkona ársins í aðalhlutverki og Fannar Arnarsson sem leikari í aukahlutverki. Jafnframt er Bjarni Jónsson, í samvinnu við Grétu Kristínu Ómarsdóttur, tilnefndur fyrir leikrit ársins, Kristinn Arnar Sigurðsson og Brynja Björnsdóttir fyrir leikmynd, Filippía I. Elísdóttir fyrir búninga, Pálmi Jónsson fyrir lýsingu og Cameron Corbett fyrir dans- og sviðshreyfingar.

Birnir Jón Sigurðsson hlýtur tilnefningu fyrir leikrit ársins fyrir Sýslumaður Dauðans en Birnir starfaði sem leikskáld Borgarleikhússins leikárið 2023-2024 og er verkið afrakstur þeirrar vinnu. Sýningin hlýtur alls sjö tilnefningar og er jafnframt tilnefnd sem sýning ársins, Stefán Jónsson er tilnefndur sem leikstjóri ársins, Birna Pétursdóttir sem leikkona ársins í aukahlutverki, Hákon Jóhannesson sem leikari ársins í aukahlutverki, Mirek Kaczmarek fær tilnefningu fyrir leikmynd verksins, sem og fyrir lýsingu ásamt Jóhanni Friðriki Ágústssyni.

Köttur á heitu blikkþaki hreppti fimm tilnefningar, þar á meðal sem sýning ársins. Þorleifur Örn Arnarsson er tilnefndur sem leikstjóri ársins, Ásthildur Úa Sigurðardóttir sem leikkona ársins í aðalhlutverki, Hilmir Snær Guðnason sem leikari í aðalhlutverki og Katla Margrét Þorgeirsdóttir sem leikkona ársins í aukahlutverki.

Stórsýningin Þetta er Laddi hlýtur þrjár tilnefningar: Þórhallur Sigurðsson, Laddi, sem leikari ársins í aðalhlutverki, Vala Kristín Eiríksdóttir sem leikkona í aðalhlutverki og Björgvin Franz Gíslason sem leikari í aukahlutverki.

Ástarsagan Fjallabak, sem byggir á Pulitzerverðlauna smásögunni Brokeback Mountain,hlýtur tvær tilnefningar. Axel Hallkell Jóhannesson er tilnefndur fyrir leikmynd ársins og Gunnar Hildimar Halldórsson fyrir lýsingu.

Ekki var síðri uppskera hjá samstarfsverkefnum Borgarleikhússins en alls hljóta þær sýningar tólf tilnefningar til Grímuverðlauna.

Leiksýningin Tóm hamingja, sem sýnd var á Nýja sviðinu í uppsetningu Gaflaraleikhússins, hlýtur tvær tilnefningar: Berglind Alda Ástþórsdóttir sem leikkona í aukahlutverki og Benedikt Gröndal sem leikari í aukahlutverki.

Sýningin Innkaupapokinn,í uppsetningu leikhópsins Kriðpleir á Litla sviðinu, er tilnefnd í fimm flokkum, þar á meðal sem sýning ársins. Höfundar verksins, Elísabet Jökulsdóttir og Kriðpleir eru jafnframt tilnefnd fyrir leikrit ársins, leikhópurinn Kriðpleir sem leikstjóri ársins, Ragnar Ísleifur Bragason sem leikari ársins í aðalhlutverki og Friðgeir Einarsson sem leikari ársins í aukahlutverki.

Árið án sumars í uppsetningu leikhópsins Marmarabörn á Stóra sviði Borgarleikhússins hlýtur þrjár tilnefningar. Guðný Hrund Sigurðardóttir er tilnefnd fyrir búninga ársins, Ólafur Ágúst Stefánsson fyrir lýsingu, og leikhópurinn Marmarabörn fyrir sviðshreyfingar.

Kammeróperan hlýtur tvær tilnefningar fyrir Brúðkaup Fígarós sem sýnd var á Nýja sviði Borgarleikhússins.Bryndís Guðjónsdóttir er tilnefnd sem söngkona ársins og Andri Unnarsson fyrir búninga ársins.

Grímuverðlaunin verða afhent við hátíðlega athöfn á Stóra sviði Borgarleikhússins þriðjudaginn 10. júní og athöfnin send út í beinni útsendingu á RÚV.

Heim

Listabraut 3

103 Reykjavík

Kt. 420269-6849

Miðasala: 568 8000

midasala@borgarleikhus.is
Skrifstofa: 568 5500

Fyrirspurnir: borgarleikhus@borgarleikhus.is

Miðasalan er opin 12-17 alla virka daga og 12-20 á sýningardögum. 568 8000
jafnlaunavottun 2023-2026

Takk fyrir stuðninginn

Borgarleikhúsið er rekið með sérstökum rekstrarsamningi við Reykjavíkurborg sem gerir okkur kleift að halda áfram að bjóða landsmönnum upp á kraftmikið og skapandi leikhús.

reykjavíkurborg logo
orkusalan logoölgerðin logo