Dav­íð Odds­son - Minn­ing

3. mars 2026

Davíð Oddsson, fyrrverandi forsætisráðherra og borgarstjóri, er látinn. Davíð lék veigamikið hlutverk í byggingu Borgarleikhússins og var ötull stuðningsmaður leikhússins alla tíð. Hann starfaði sem leikhúsritari Leikfélags Reykjavíkur 1970-1972, en sem borgarfulltrúi og síðar borgarstjóri sat hann í byggingarnefnd Borgleikhússins frá því að fyrsta skóflustunga að húsinu var tekin árið 1976 – fyrst sem ritari nefndarinnar, síðan varaformaður og loks formaður eftir að hann var kjörinn borgarstjóri 1982.

Í borgarstjóratíð Davíðs var lögð mikil áhersla á að ljúka byggingu Borgarleikhússins. Skömmu eftir að Davíð tók við embætti borgarstjóra var fé til byggingar Borgarleikhússins fjórfaldað og það sama gerðist þremur árum síðar. Á 99 ára afmæli Leikfélags Reykjavíkur þann 11. janúar 1986 lagði Davíð hornstein að Borgarleikhúsinu og í september 1989 afhenti Davíð Hallmari Sigurðssyn, þáverandi leikhússtjóra, lyklana að húsinu.

„Við lifum nú þá stund er draumur breytist í veruleika“, sagði Davíð Oddsson við vígslu Borgarleikhússins þann 20. október 1989 og lauk máli sínu á segjast „sannfærður um að Reykvíkingar á þessum vígsludegi gleðjast yfir þessu framtaki, og skynja að hér er verið að skapa varanlegan auð, glæsilegan vettvang lista, menningar og skemmtunar.

Leikfélag Reykjavíkur þakkar ómetanlegan stuðning og sendir aðstandendum dýpstu samúðarkveðjur.

Heim

Listabraut 3
103 Reykjavík
Kt. 420269-6849
Miðasala: 568 8000
midasala@borgarleikhus.is
Skrifstofa: 568 5500

Fyrirspurnir: borgarleikhus@borgarleikhus.is

Jafnlaunavottun 2023-2026
Jafnvægisvog FKA 2025
Framúrskarandi fyrirtaeki 2025

Miðasalan er opin 12-17 alla virka daga og 12-20 á sýningardögum.

568 8000

Takk fyrir stuðninginn

Borgarleikhúsið er rekið með sérstökum rekstrarsamningi við Reykjavíkurborg sem gerir okkur kleift að halda áfram að bjóða landsmönnum upp á kraftmikið og skapandi leikhús.

reykjavíkurborg logo
orkusalan logoölgerðin logo