Þriðjudaginn 22. september kl. 17:30 verður annað leikhúskaffi vetrarins þegar leikstjórinn Stefán Jónsson segir frá sýningunni Djöflar, nálgun sinni á verkið og aðferðafræði. Í kjölfarið verður farið samferða yfir á Nýja svið Borgarleikhússins þar sem leikmyndin, sem hönnuð er af Berki Jónssyni, verður skoðuð og boðið upp á umræður og spurningar fyrir áhugasama.
Leiksýningin Djöflar eftir Lars Norén verður frumsýnd á Nýja sviði Borgarleikhússins 9. október næstkomandi. Sýningin er spennuþrungin kvöldstund með svörtum húmor og kostulegum uppákomum.
Stefán Jónsson leikstýrir þessum áhrifamikla hjónaleik eftir eitt fremsta leikskáld Norðurlanda.
Gestum leikhúskaffis býðst 10% afsláttur af miðaverði á sýninguna.Hjólastólaaðgengi er á viðburðinum.
Leikhúskaffið er í samstarfi við Borgarbókasafnið í Kringlunni og er haldið þar.
Öll eru hjartanlega velkomin!