Ekki Hug­mynd plat­an er kom­in á Spotify!

16. apríl 2026

Lögin úr sýningunni Ekki Hugmynd eru loksins komin á Spotify! EP-platan inniheldur vinsælustu lögin úr sýningunni sem hefur slegið í gegn á Litla sviði Borgarleikhússins.

Sérstaka athygli hefur vakið lagið „Veldu Nám“, þar sem Vigdís Hafliða fer á kostum og rekur hið stórkostlega úrval sem stendur til boða fyrir þá sem eru óákveðnir í vali á háskólanámi.

Ekki Hugmynd er bráðfyndið gamanleikrit þar sem mannabörnin Arnór, Óli og Vigdís standa öll á tímamótum lífsins, algjörlega týnd og með ekkert plan. Með gríni, mis-heimspekilegum kenningum, söng og öllum tiltækum leikhústrixum leggja þau af stað í leit að svörum við stóru spurningum lífsins og reyna um leið að færa íslensku þjóðinni endanlegt svar við ráðgátunni:

Og hvert er svarið?

Eeeeeekki huuuuuuugmynd.

Tónlist sýningarinnar er eftir Vigdísi Hafliðadóttur og Egil Andrason, en Egill Andrason annast jafnframt leikstjórn.

EP-plötuna má nú hlusta á í spilaranum hér fyrir neðan á Spotify:

Ekki hugmynd
Heim

Listabraut 3
103 Reykjavík
Kt. 420269-6849
Miðasala: 568 8000
midasala@borgarleikhus.is
Skrifstofa: 568 5500

Fyrirspurnir: borgarleikhus@borgarleikhus.is

Jafnlaunavottun 2023-2026
Jafnvægisvog FKA 2025
Framúrskarandi fyrirtaeki 2025

Miðasalan er lokuð vegna sumarleyfa til miðvikudagsins 19. ágúst

568 8000

Takk fyrir stuðninginn

Borgarleikhúsið er rekið með sérstökum rekstrarsamningi við Reykjavíkurborg sem gerir okkur kleift að halda áfram að bjóða landsmönnum upp á kraftmikið og skapandi leikhús.

reykjavíkurborg logo
orkusalan logoölgerðin logo