Eva Sig­ný og Aníta til starfa hjá Borgar­leik­húsinu

25. mars 2026

Borgarleikhúsið hefur ráðið Evu Signýju Berger í stöðu yfirhönnuðar hússins og Anítu Ólafsdóttur sem viðburðastjóra.

Aníta hóf störf fyrr á leikárinu og hefur jafnframt yfirumsjón með rekstri veitingadeildar Borgarleikhússins. Hún starfaði áður hjá Hilton Reykjavík Nordica sem ráðstefnu- og viðburðastjóri. Áður starfaði Aníta hjá viðburðafyrirtækinu Practical auk annarra fjölbreyttra starfa innan íslenskrar ferðaþjónustu.

Markmið ráðningar viðburðastjóra er meðal annars að leggja aukna áherslu á fjölbreytt ráðstefnu- og viðburðahald í leikhúsinu auk þess að efla þjónustustig við leikhúsgesti.

Sem yfirhönnuður Borgarleikhússins mun Eva Signý Berger hafa yfirumsjón með útliti leikhússins og verður tengiliður við leikmynda- og búningahöfunda í leiksýningum Leikfélags Reykjavíkur. Samhliða því mun hún einnig sjá um hönnun leikmynda í tveimur verkefnum á ári.

Eva hefur hannað yfir fimmtíu sýningar fyrir leikhús, dans, brúðuleikhús og óperu. Hún hefur hlotið fjölda tilnefninga til Grímunnar, íslensku sviðslistarverðlaunanna, fyrir störf sín. Eva hefur jafnframt komið að myndlistar- og kvikmyndaverkefnum og sat í stjórn FÍL árin 2018 til 2026. Þá hefur hún verið formaður Félags leikmynda- og búningahöfunda frá árinu 2021.

Heim

Listabraut 3
103 Reykjavík
Kt. 420269-6849
Miðasala: 568 8000
midasala@borgarleikhus.is
Skrifstofa: 568 5500

Fyrirspurnir: borgarleikhus@borgarleikhus.is

Jafnlaunavottun 2023-2026
Jafnvægisvog FKA 2025
Framúrskarandi fyrirtaeki 2025

Miðasalan er lokuð vegna sumarleyfa til miðvikudagsins 19. ágúst

568 8000

Takk fyrir stuðninginn

Borgarleikhúsið er rekið með sérstökum rekstrarsamningi við Reykjavíkurborg sem gerir okkur kleift að halda áfram að bjóða landsmönnum upp á kraftmikið og skapandi leikhús.

reykjavíkurborg logo
orkusalan logoölgerðin logo