Fyrsti sam­lest­ur - Krakk­ar skrifa leik­rit

11. febrúar 2026

Í gær fór fram fyrsti samlestur á sigurhandritum leikritahandritakeppni Sagna í Borgarleikhúsinu. Borgarleikhúsið er aðili að Sögum sem eru stórt samstarfsverkefni sjö stofnana sem allar vinna að barnamenningu og sköpun.

Árlega er skorað á krakka á aldrinum 8-12 ára til að taka þátt og senda inn handrit. Núna í ár valdi leikhúsið tvö vinningshandrit úr leikritasamkeppni Sagna og bárust okkur fjölmörg frábær handrit frá börnum hvaðanæva af landinu. Verkin sem báru sigur úr býtum eru verkin Torgið eftir Ásgeir Atla Rúnarsson og Geimverur í heimsókn! eftir þá Axel Frey Garðarsson, Hilmar Birkisson, Hrein Atla Gunnarsson og Sævar Hrafn Garðarsson.

Þau verða síðan sviðsett af nemendum á lokaári Leiklistarskóla Borgarleikhússins ásamt fagfólki.

Við óskum þeim Ásgeiri, Axel Frey, Hilmari, Hreini og Sævari innilega til hamingju með þessi stórkostlegu verk. Sýningar á verkunum verða 22. og 23. apríl á Nýja sviðinu í Borgarleikhúsinu.


Heim

Listabraut 3
103 Reykjavík
Kt. 420269-6849
Miðasala: 568 8000
midasala@borgarleikhus.is
Skrifstofa: 568 5500

Fyrirspurnir: borgarleikhus@borgarleikhus.is

Jafnlaunavottun 2023-2026
Jafnvægisvog FKA 2025
Framúrskarandi fyrirtaeki 2025

Miðasalan er opin 12-17 alla virka daga og 12-20 á sýningardögum.

568 8000

Takk fyrir stuðninginn

Borgarleikhúsið er rekið með sérstökum rekstrarsamningi við Reykjavíkurborg sem gerir okkur kleift að halda áfram að bjóða landsmönnum upp á kraftmikið og skapandi leikhús.

reykjavíkurborg logo
orkusalan logoölgerðin logo