Grímu­verð­laun­in 2026 af­hent í gær­kvöldi

26. maí 2026

Grímuverðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn í Þjóðleikhúsinu í gærkvöldi og í beinni útsendingu á RÚV.

Sýningar í Borgarleikhúsinu hlutu tvenn verðlaun að þessu sinni. Var leikkonan Berglind Alda Ástþórsdóttir valin leikkona í aukahlutverki fyrir hlutverk sitt sem Ófelía í Hamlet. Hamlet var sýndur á Litla sviði Borgarleikhússins í leikstjórn Kolfinnu Nikulásdóttur, sem hlaut tilnefningu fyrir leikstjórn á því verki.

Leikari í aðalhlutverki var Árni Pétur Guðjónsson fyrir hlutverk sitt í Skammarþríhyrningnum, sem einnig var sýndur á Litla sviðinu. Skammarþríhyrningurinn var framleiddur af Stertabendu í samstarfi við MurMur Productions og Borgarleikhúsið. Gréta Kristín Ómarsdóttir, leikstjóri Skammarþríhyrningsins hlaut einnig tilnefningu fyrir leikstjórn, en hún tók við verðlaununum fyrir hönd Árna Péturs sem var staddur erlendis.

Þá hlaut barna- og unglingastarf Borgarleikhússins hvatningarverðlaun dómnefndar. Í umsögn dómnefndar sagði; „Í öllu barna- og ungmennastarfi Borgarleikhússins er markvisst unnið eftir Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Starfið er afar fjölbreytt og í stöðugri þróun. Það nær meðal annars til fjölmenns leiklistarskóla, barnaþings og mikilvægs starfs með flóttabörnum og hinsegin ungmennum. Árlega er boðið upp á þrjár ókeypis leiksýningar fyrir ólíka aldurshópa skólabarna. Verkfærakista leiklistarinnar er þannig nýtt af miklum metnaði til þroska og valdeflingar nýrra kynslóða."

Emelía Antonsdóttir Crivello, skólastjóri Leiklistarskóla Borgarleikhússins og verkefnastjóri samfélags- og fræðslumála tók við verðlaununum fyrir hönd þeirra sem að barna- og ungmennastarfinu koma, en starfið er margþætt og stórt teymi sem vinnur að því.

Þökkum við kærlega fyrir hvatninguna og heiðurinn og óskum öllum sigurvegurum kvöldsins innilega til hamingju.

Heim

Listabraut 3
103 Reykjavík
Kt. 420269-6849
Miðasala: 568 8000
midasala@borgarleikhus.is
Skrifstofa: 568 5500

Fyrirspurnir: borgarleikhus@borgarleikhus.is

Jafnlaunavottun 2023-2026
Jafnvægisvog FKA 2025
Framúrskarandi fyrirtaeki 2025

Miðasalan er opin 12-17 alla virka daga og 12-20 á sýningardögum.

568 8000

Takk fyrir stuðninginn

Borgarleikhúsið er rekið með sérstökum rekstrarsamningi við Reykjavíkurborg sem gerir okkur kleift að halda áfram að bjóða landsmönnum upp á kraftmikið og skapandi leikhús.

reykjavíkurborg logo
orkusalan logoölgerðin logo