Hall­grím­ur Helga­son í Borg­ar­leik­hús­ið

27. september 2024

Hallgrímur Helgason í Borgarleikhúsinu. Fer í gegnum skáldsögurnar extíu kíló af sólskini, Sextíu kíló af kjaftshöggum og þriðju bókinni Sextíu kíló af sunnudögum sem kemur út nú í haust.

Hallgrímur Helgason er kunnur sögumaður og hefur haldið gríðarlega vinsæl námskeið þar sem hann opnar bækur sínar um fólkið á Segulfirði upp á gátt fyrir lesendum sínum. Nú býður hann gestum til sætis á Litla sviði Borgarleikhússins þar sem hann mun rekja frásögnina í gegnum skáldsögurnar Sextíu kíló af sólskini, Sextíu kíló af kjaftshöggum og þriðju bókinni Sextíu kíló af sunnudögum sem kemur út nú í haust. 

Á sviðinu rekur hann frásögnina í gegnum skáldsögurnar af sinni alkunnu list, les upp úr bókunum, lyftir hulunni af vinnuferlinu, baksögunum og innblæstrinum og gæðir persónur sínar lífi sem aldrei fyrr.

Heim

Listabraut 3
103 Reykjavík
Kt. 420269-6849
Miðasala: 568 8000
midasala@borgarleikhus.is
Skrifstofa: 568 5500

Fyrirspurnir: borgarleikhus@borgarleikhus.is

jafnlaunavottun 2023-2026

Miðasalan er opin 12-17 alla virka daga og 12-20 á sýningardögum.

568 8000

Takk fyrir stuðninginn

Borgarleikhúsið er rekið með sérstökum rekstrarsamningi við Reykjavíkurborg sem gerir okkur kleift að halda áfram að bjóða landsmönnum upp á kraftmikið og skapandi leikhús.

reykjavíkurborg logo
orkusalan logoölgerðin logo