Fyrsta frumsýningin á Nýja sviði Borgarleikhússins á leikárinu 2026/2027 verður hið áhrifamikla verk Djöflar eftir Lars Norén, eitt helsta samtímaskáld Norðurlanda.
Með hlutverk fara Hilmir Snær Guðnason, Vala Kristín Eiríksdóttir, Haraldur Ari Stefánsson og Íris Tanja Flygenring. Stefán Jónsson leikstýrir.
Frank stendur með tvo plastpoka í anddyri glæsiíbúðar sinnar og Katarínu. Í öðrum pokanum eru nýir skór, í hinum öskuker móður hans, sem á að jarðsetja daginn eftir. Von er á bróður Franks og mágkonu, en þau afboða komu sína. Til að létta þrúgandi stemninguna, bjóða hjónin nágrönnum sínum í heimsókn. Við tekur drykkja og usli, sem opna gömul sár og leysa úr læðingi bældar langanir. Úr verður ógleymanleg erfidrykkja, með óljósum leikreglum, svörtum húmor og kostulegum uppákomum.
Æfingar eru hafnar og verða Djöflar frumsýndir þann 9. október næstkomandi.