Það var húsfyllir í Borgarleikhúsinu í gær þegar áhorfendur mættu á opinn kynningarfund um það sem fram undan er á fjölunum í vetur. Egill Heiðar, leikhússtjóri Borgarleikhússins, fór yfir fjölbreytta dagskrá leikársins og það sem bíður leikhúsgesta næstu mánuði.
Á kynningarfundinum gafst gestum forsmekkur að mörgum af þeim leiksýningum og viðburðum sem verða í Borgarleikhúsinu í vetur. Auður Ava Ólafsdóttir kom og spjallaði um Annie Ernaux og leikverkið Árin. María Reyndal sýndi atriði úr nýjasta verki sínu, Svikasögum, sem verður frumsýnt 19. september.
Gestir fengu einnig að sjá leikna senu úr Djöflum, dansatriði úr Þegar Trölli stal jólunum og atriði úr Galdrakarlinum í Oz og söngleiknum Moulin Rouge!
Leikhús fyrir öll
Það er nóg um að vera í Borgarleikhúsinu í Reykjavík í vetur og dagskráin ætti að höfða til ólíkra hópa. Hvort sem þú ert að leita að skemmtilegu kvöldi með fjölskyldunni, góðu stefnumóti, menningarupplifun með vinum eða gjöf sem skapar minningar, þá er Borgarleikhúsið góður staður til að byrja.
Fyrir fjölskyldur eru meðal annars Galdrakarlinn í Oz og Þegar Trölli stal jólunum á dagskrá, en fyrir þau sem vilja njóta stórbrotinnar kvöldskemmtunar er Moulin Rouge! hikluast svarið!
Og fyrir þá sem vilja kynnast nýjum íslenskum verkum, upplifa dans eða sökkva sér í klassísk og sígild verk er úr nægu að velja.
Leikhúskvöld er góð gjöf
Leikhúsmiði er líka tilvalin gjöf. Það er fátt betra en að gefa upplifun sem hægt er að njóta saman.
Íslenski dansflokkurinn kíkti einnig við á kynningarfundinum og fór yfir það sem fram undan er í dansvetrinum.
Það er því óhætt að segja að það sé líf og fjör í Borgarleikhúsinu og nóg að hlakka til í vetur.
Takk kærlega fyrir komuna!