Konu­dag­ur­inn í Borg­ar­leik­hús­inu – Til­val­in gjöf!

18. febrúar 2026

Konudagurinn er næstkomandi sunnudag og fátt gleður meira en að eiga fallega kvöldstund í Borgarleikhúsinu í tilefni dagsins. Leikhúsferð er einstök gjöf og upplifun sem gleymist seint!

Miðar á stórsöngleikinn Moulin Rouge! eru tilvalin gjöf fyrir öll sem kunna að meta ástríðu, glamúr og stórkostlegt sjónarspil. Fyrir sýningu og í hléi býðst gestum að njóta veitinga í forsalnum, þar sem hægt er að panta bæði freyðandi Moët eða óáfengan drykk til að skála fyrir konunum í lífi okkar.

Ef stemningin kallar á annað en söngleik er úrvalið engu að síður glæsilegt. Óperan La bohème býður upp á rómantíska og ástríðufulla sögu sem hefur heillað óperuunnendur um allan heim. Þetta er Laddi kitlar hláturtaugarnar á Stóra sviðinu helgi eftir helgi. Hvað sem verður fyrir valinu má treysta því að kvöldstund í leikhúsinu skapar minningar sem gleymast ekki.

Konudagurinn er kjörinn til að njóta, heiðra og fagna. Kvöld í leikhúsinu getur einfaldlega ekki klikkað!

Heim

Listabraut 3
103 Reykjavík
Kt. 420269-6849
Miðasala: 568 8000
midasala@borgarleikhus.is
Skrifstofa: 568 5500

Fyrirspurnir: borgarleikhus@borgarleikhus.is

Jafnlaunavottun 2023-2026
Jafnvægisvog FKA 2025
Framúrskarandi fyrirtaeki 2025

Miðasalan er lokuð vegna sumarleyfa til miðvikudagsins 19. ágúst

568 8000

Takk fyrir stuðninginn

Borgarleikhúsið er rekið með sérstökum rekstrarsamningi við Reykjavíkurborg sem gerir okkur kleift að halda áfram að bjóða landsmönnum upp á kraftmikið og skapandi leikhús.

reykjavíkurborg logo
orkusalan logoölgerðin logo