Laddi kveð­ur Stóra svið­ið

12. maí 2026

Um síðustu helgi sýndum við lokasýningu gamanævisöguleikritsins Þetta er Laddi. Stemningin var rosaleg, bæði hjá leikhóp og í salnum. Það eru alltaf blendnar tilfinningar að kveðja fyrir fullu húsi, en líka ljúft að snúa sér aftur að golfinu af fullum krafti.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Laddi tekur yfir Stóra sviðið. Margir muna eflaust eftir Laddi 6-tugur, sextugsafmælissýningunni sem átti upphaflega aðeins að vera sýnd fjórum sinnum, en var sýnd í fjölmörg ár við frábærar undirtektir.

Viðtökurnar við Þetta er Laddi hafa einnig verið glimrandi góðar. Salurinn hefur ómað af hlátri kvöld eftir kvöld og jafnvel stöku tár fengið að fljóta með.

Við gátum auðvitað ekki kvatt sýninguna fyrir fullu húsi án þess að gera henni almennileg skil. Hver veit nema Þetta er Laddi rati síðar á skjá allra landsmanna.

Borgarleikhúsið þakkar Ladda kærlega fyrir yndislegt samstarf. Það hefur verið sannkölluð ánægja að hafa þig í húsi.

Heim

Listabraut 3
103 Reykjavík
Kt. 420269-6849
Miðasala: 568 8000
midasala@borgarleikhus.is
Skrifstofa: 568 5500

Fyrirspurnir: borgarleikhus@borgarleikhus.is

Jafnlaunavottun 2023-2026
Jafnvægisvog FKA 2025
Framúrskarandi fyrirtaeki 2025

Miðasalan er opin 12-17 alla virka daga og 12-20 á sýningardögum.

568 8000

Takk fyrir stuðninginn

Borgarleikhúsið er rekið með sérstökum rekstrarsamningi við Reykjavíkurborg sem gerir okkur kleift að halda áfram að bjóða landsmönnum upp á kraftmikið og skapandi leikhús.

reykjavíkurborg logo
orkusalan logoölgerðin logo