Leik­hús­kaffi fyr­ir Nifl­unga­hring­inn í dag

30. september 2025

Í dag kl. 17:30 er Leikhúskaffi fyrir sýninguna Niflungahringurinn allur, á Borgarbókasafninu í Kringlunni. Þar mun Ágústa Skúladóttir, leikstjóri verksins, og Hjörleifur Hjartarson höfundur og leikari segja frá sýningunni. Í kjölfarið verður farið samferða yfir á Nýja svið Borgarleikhússins þar sem leikmyndin verður skoðuð og boðið upp á umræður og spurningar fyrir áhugasama. Verið velkomin!

Leiksýningin Niflungahringurinn allur verður frumsýndur á Nýja sviði Borgarleikhússins þann 24. október næstkomandi. Hundur í Óskilum tekst á hendur að færa Íslendingum í fyrsta sinn allan Niflungahring Richards Wagners – eins og hann leggur sig.

Leikhúskaffið er skemmtilegur viðburður fyrir öll sem hafa áhuga á leikhúsi og hefst á Borgarbókasafninu Kringlunni þar sem Ágústa Skúladóttir leikstjóri og Hjörleifur Hjartarson höfundur og leikari segja frá sýningunni. Í kjölfarið verður farið samferða yfir á Nýja svið Borgarleikhússins þar sem leikmyndin verður skoðuð og boðið upp á umræður og spurningar fyrir áhugasama. Gestum leikhúskaffis býðst 10% afsláttur af miðaverði á sýninguna. Hjólastólaaðgengi er á viðburðinum. Öll eru hjartanlega velkomin!

Hér er hægt að lesa um sýninguna.

Heim

Listabraut 3
103 Reykjavík
Kt. 420269-6849
Miðasala: 568 8000
midasala@borgarleikhus.is
Skrifstofa: 568 5500

Fyrirspurnir: borgarleikhus@borgarleikhus.is

Jafnlaunavottun 2023-2026
Jafnvægisvog FKA 2025
Framúrskarandi fyrirtaeki 2025

Miðasalan er lokuð vegna sumarleyfa til miðvikudagsins 19. ágúst

568 8000

Takk fyrir stuðninginn

Borgarleikhúsið er rekið með sérstökum rekstrarsamningi við Reykjavíkurborg sem gerir okkur kleift að halda áfram að bjóða landsmönnum upp á kraftmikið og skapandi leikhús.

reykjavíkurborg logo
orkusalan logoölgerðin logo