Leiklistarskóli Borgarleikhússins fagnar tíu ára afmæli á þessu ári. Af því tilefni var efnt til hátíðardagskrár í forsal Borgarleikhússins í gær þar sem fyrrverandi og núverandi nemendur, kennarar og aðrir gestir komu saman til að fagna áfanganum.
Frá stofnun hefur skólinn vaxið jafnt og þétt. Fyrstu árin stunduðu um 30 nemendur nám við skólann ár hvert en í dag eru þeir rúmlega 100. Þá hafa hátt í 3.000 börn sótt sumarnámskeið í leiklist á undanförnum tíu árum.
Skólastjóri Leiklistarskólans, Emelía Crivello, steig á svið og þakkaði þeim sem hafa lagt sitt af mörkum frá stofnun skólans, fyrrverandi og núverandi Borgarleikhússtjórum, kennarateyminu og samstarfsaðilum, en fyrst og fremst nemendunum, sem hún segir vera hjartað í skólanum.
Emelía Crivello, skólastjóri leiklistarskólans og Egill Heiðar Anton Pálsson, Borgarleikhússtjóri.
„Leiklist snýst auðvitað um sviðið, sýningarnar, sögurnar og persónurnar. En hún snýst líka um eitthvað miklu stærra. Hún snýst um að finna röddina sína. Að sýna hugrekki. Að standa frammi fyrir áskorunum og uppgötva að maður getur kannski meira en maður hélt.” segir Emelía. „Á sumarnámskeiðunum sjáum við iðulega börn sem þora varla að tala upphátt fyrsta daginn en standa svo örugg frammi fyrir fullum sal af áhorfendum nokkrum dögum síðar! Við sjáum vináttu myndast, sjálfstraust vaxa og hugmyndaflug fá vængi. Það er forréttindi að fá að fylgjast með þessum augnablikum og sigrum hjá nemendunum okkar.”
Rúnar Freyr Gíslason, formaður menningarráðs Reykjavíkurborgar var meðal gesta og óskaði hann nemendum og starfsfólki til hamingju með stórafmælið.
„Þegar við horfum til næstu tíu ára fyllumst við bjartsýni. Við hér sem stýrum Borgarleikhúsinu viljum halda áfram að vera staður þar sem börn og ungmenni fá tækifæri til að tjá sig, vaxa og vera þau sjálf. Staður þar sem sköpunargleði, virðing og samvinna fá að blómstra.” bætir Emelía við.