Hvatningarverðlaun skóla- og frístundaráðs fyrir framúrskarandi frístundastarf skólaárið 2025–2026 voru afhent við hátíðlega athöfn fimmtudaginn 7. maí. Verðlaunin eru veitt þeim verkefnum sem hafa skarað fram úr í starfi með börnum, unglingum og ungmennum og endurspegla áherslur menntastefnu Reykjavíkurborgar. Meðal þeirra verkefna sem hlutu hvatningarverðlaunin var Hinsegin Vinnuskólahópurinn sem var samstarfsverkefni Leiklistarskóla Borgarleikhússins, Hinsegin félagsmiðstöðvar Tjarnarinnar, Samtakanna 78 og Vinnuskóla Reykjavíkur. Verkefnið var styrkt af Nýsköpunarsjóði námsmanna.
Leiðbeinendur verkefnisins voru þau Hrefna Þórarinsdóttir, forstöðumaður Hinsegin félagsmiðstöðvarinnar, Vigfús Karl Steinsson, starfsmaður Hinsegin félagsmiðstöðvarinnar og svo Eva Halldóra Guðmundsdóttir, yfirkennari Leiklistarskóla Borgarleikhússins sem leiddi samsköpunarvinnuna, leikstýrði sýningunni og var tengiliður við Borgarleikhúsið.
Hinsegin félagsmiðstöðin setti saman vinnuskólahóp af fimmtán unglingum. Ásamt því að vinna með starfsfólki félagsmiðstöðvarinnar í skapandi verkefnum, sem stuðluðu að félags- og tilfinningahæfni, mættu unglingarnir þrjá daga í viku yfir þriggja vikna tímabil og unnu að frumsaminni sýningu í gegnum leiklistaræfingar, spuna og handritsgerð. Smiðjan endaði með frumsýningu á verkinu Hinsegin lífið, á Litla sviði Borgarleikhússins.
Markmið Hinsegin leiklistarsmiðjunnar var að valdefla unglingana sem tóku þátt, með leiklist, sjálfstæðri vinnu og samvinnu, að skapa öruggt rými fyrir tjáningu og efla sjálfstraust og tengslamyndun. Og að undirstrika mikilvægi þess að hinsegin unglingar fái vettvang til að tjá sig, skapa, vera sýnileg og að þeirra raddir fái að óma á sviðum leikhússins.
Eva Halldóra leikstýrði sýningunni og vann handritið með hópnum. Hrefna og Vigfús unnu með hópnum í æfingum sem stuðluðu að sjálfseflingu, hópefli og markmiðasetningu. Viktor Luca Forte starfsmaður Hinsegin félagsmiðstöðvarinnar aðstoðaði hópinn við uppsetningu leikverksins á lokasprettinum.
Leikhópurinn skapaði handrit, mótuðu persónur, einræður og samtöl, sömdu lagatexta, lærðu dansa og hönnuðu búninga, ljós og hljóð. Í verkinu Hinsegin lífið er sögusviðið bærinn Hýrholt þar sem samfélagið virðist lúta ströngum reglum um hvernig þú átt og mátt vera. En undir yfirborðinu kraumar þráin eftir frelsi og viðurkenningu. Við fylgjum starfsfólki skólans og unglingum í 9. og 10. bekk í gegnum skóladaginn þar sem þau kljást við væntingar samfélagsins og leitina að sjálfum sér. Smám saman komast þau að því að leiðin að frelsi felst í viðurkenningu á sjálfu sér, finna samkennd og samstöðu.