Leikhúskaffi Borgarleikhússins og Borgarbókasafnsins í Kringlunni fór fram í gær og var góð mæting á viðburðinn. Leikstjórinn Agnar Jón Egilsson sagði frá sýningunni Mömmó, nálgun sinni á verkið og aðferðafræði. Í kjölfarið var farið samferða yfir á Nýja svið Borgarleikhússins þar sem leikmyndin var skoðuð og boðið var upp á umræður og spurningar.
Leiksýningin Mömmó eftir Paulu Vogel verður frumsýnd á Nýja sviði Borgarleikhússins þann 13. mars næstkomandi. Paula Vogel er eitt vinsælasta og virtasta leikskáld Bandaríkjanna. Mömmó er nýjasta verk hennar, frá 2024 og var það tilnefnt til allra hugsanlegra leiklistarverðlauna bandaríkjanna á síðasta ári. Leikritið er að hluta til sjálfsævisögulegt en Vogel byggir það á sambandi sínu við móður sína og bróður.
Leikhúskaffi eru haldin í aðdraganda frumsýninga á nýjum verkum Borgarleikhússins og eru þau auglýst sérstaklega á heimasíðu Borgarleikhússins, póstlistanum og hjá Borgarbókasafninu.
Gestum leikhúskaffis býðst 10% afsláttur af miðaverði á sýninguna. Hjólastólaaðgengi er á viðburðunum. Öll eru hjartanlega velkomin!