Nýtt leik­ár hefst í Borg­ar­leik­hús­inu

26. ágúst 2026

Við hlökkum til að sjá ykkur í Borgarleikhúsinu


Kæru leikhúsgestir,

Nú er Borgarleikhúsið að fyllast af lífi á ný eftir sumarfrí. Æfingar eru hafnar, sviðin að vakna og það styttist í að við opnum dyrnar og bjóðum ykkur velkomin á nýtt leikár.

Við erum full tilhlökkunar enda verður veislan stór í vetur. Á hlaðborði leikársins verða fjölbreyttar sýningar fyrir alla aldurshópa og ólíkan smekk: spennuþrungnar og mannlegar sögur, hjartnæm verk, stórir söngleikir, fjölskylduævintýri, gaman, ópera, sirkus og margt fleira.

Yfir fimmtán sýningar verða á fjölum Borgarleikhússins í vetur. Ný íslensk verk og sígildar sögur fá að njóta sín, nýjar sýningar líta dagsins ljós og vinsælar sýningar frá síðasta leikári snúa aftur.

Leikhúsið er staður þar sem við komum saman, hlæjum, hrífumst, undrumst og sjáum heiminn frá nýju sjónarhorni. Við vonum að öll finni eitthvað við sitt hæfi á fjölbreyttri dagskrá vetrarins.

Nú er allt að verða tilbúið, ljósin að kvikna og tjaldið að rísa.

Við hlökkum til að sjá ykkur í Borgarleikhúsinu í vetur!

Egill Heiðar Anton Pálsson
Borgarleikhússtjóri

Heim

Listabraut 3
103 Reykjavík
Kt. 420269-6849
Miðasala: 568 8000
midasala@borgarleikhus.is
Skrifstofa: 568 5500

Fyrirspurnir: borgarleikhus@borgarleikhus.is

Jafnlaunavottun 2023-2026
Jafnvægisvog FKA 2025
Framúrskarandi fyrirtaeki 2025

Miðasalan er opin 12-17 alla virka daga og 12-20 á sýningardögum.

568 8000

Takk fyrir stuðninginn

Borgarleikhúsið er rekið með sérstökum rekstrarsamningi við Reykjavíkurborg sem gerir okkur kleift að halda áfram að bjóða landsmönnum upp á kraftmikið og skapandi leikhús.

reykjavíkurborg logo
orkusalan logoölgerðin logo