Nýtt Ung­menna­ráð kos­ið

21. september 2026

Nýtt Ungmennaráð Leiklistarskóla Borgarleikhússins kosið

Fyrsta Ungmennaráð Leiklistarskóla Borgarleikhússins hefur látið af störfum og nýtt ráð var kosið á kosningafundi útskrifaðra ungleikara. Þau Karen Sæberg (fyrrum formaður), Tinna Sigfinnsdóttir, Brynjólfur Aron Jónsson, Arnar Leví Baldvinsson og Hekla Lind Ólafsdóttir létu af störfum og hafa unnið ómetanlega vinnu fyrir hönd ungs fólks innan leikhússins. Við þökkum þeim innilega fyrir frábært starf.

(Fráfarandi ungmennaráð ásamt leikhússtjóra og skólastjóra leiklistarskólans)

En um leið og við kveðjum gamla ráðið með söknuði bjóðum við þau Katrínu Rós Harðardóttur (formaður), Frey Magnússon, Helga Daníel Hannesson, Magnús Leví Árnason og Þórunni Maríu Reynisdóttur hjartanlega velkomin til starfa. Við erum svo þakklát fyrir alla útskrifuðu ungleikarana sem mættu og kusu þessa flottu fulltrúa.

(Nýkosið ungmennaráð)

Ungmennaráð Leiklistarskóla Borgarleikhússins er vettvangur fyrir ungleikara undir 18 ára aldri sem hafa lokið námi við skólann til að hafa áhrif á og taka þátt í mótun framtíðar skólans og Borgarleikhússins, með ungt fólk og sjónarhorn þess að leiðarljósi. Ráðið var stofnað á Krakkaþingi Fíusólar í apríl 2024 og í því sitja fimm útskrifaðir nemendur sem eru kosnir til tveggja ára í senn. Ráðið fundar að minnsta kosti tvisvar á ári, safnar hugmyndum, ræðir málefni ungs fólks og leiklistar og tekur þátt í stefnumótun og nýsköpun. Auk þess vinnur ráðið að minnsta kosti eitt leiklistarverkefni á vegum skólans á ári. Borgarleikhúsið getur einnig leitað til ráðsins eftir ráðgjöf um málefni er varða ungt fólk og starfsemi skólans. Einu sinni á ári fundar ráðið með Borgarleikhússtjóra þar sem meðlimir koma á framfæri þeim málefnum sem brenna á þeim hverju sinni.

Ungmennaráð Leiklistarskóla Borgarleikhússins er skýr áminning um að framtíð leikhússins er í góðum höndum. Ungt fólk hefur sterka rödd, listræna sýn og óbilandi trú á mátt sköpunar. Það okkar skylda sem stofnun að búa til vettvang og hlusta á þau og þeirra frábæru hugmyndir.

Heim

Listabraut 3
103 Reykjavík
Kt. 420269-6849
Miðasala: 568 8000
midasala@borgarleikhus.is
Skrifstofa: 568 5500

Fyrirspurnir: borgarleikhus@borgarleikhus.is

Jafnlaunavottun 2023-2026
Jafnvægisvog FKA 2025
Framúrskarandi fyrirtaeki 2025

Miðasalan er opin 12-17 alla virka daga og 12-20 á sýningardögum.

568 8000

Takk fyrir stuðninginn

Borgarleikhúsið er rekið með sérstökum rekstrarsamningi við Reykjavíkurborg sem gerir okkur kleift að halda áfram að bjóða landsmönnum upp á kraftmikið og skapandi leikhús.

reykjavíkurborg logo
orkusalan logoölgerðin logo