Nýtt verk eft­ir Maríu Reyn­dal á Stóra svið­inu í haust

15. maí 2026

Svikasögur, glænýtt verk eftir Maríu Reyndal, verður frumsýnt á Stóra sviði Borgarleikhússins í september næstkomandi. María hefur á undanförnum árum sett upp tvö verk í Borgarleikhúsinu - Er ég mamma mín? og Með Guð í vasanum, sem báðar fengu frábæra gagnrýni og viðtökur leikhúsgesta.

Svikasögur gerast að mestu árið 1984 og stendur Nanna á hinum ómótstæðilegu og óbærilegu mörkum þess að vera barn og unglingur. Hún er líka milli tveggja elda þegar foreldrar hennar takast á og toga hana í ólíkar áttir. Hvernig er hægt að treysta fullorðnu fólki sem segir eitt en gerir annað? Hvort er raunverulega verra, að stela sígarettum eða halda framhjá?

María er þekkt fyrir bráðfyndin og mannleg verk sín og óhætt er að búast við hlátrasköllum í bland við hjartaskerandi andartök. Með húmorinn og hlýjuna að vopni tekst María Reyndal á við hjónaskilnað og rof í kjarnafjölskyldunni í þessu nýja verki.

María mun leiða magnaðan leikhóp með Kötlu Margréti Þorgeirsdóttur, Berglindi Öldu Ástþórsdóttur, Vilhelm Neto, Birnu Pétursdóttur, Hákoni Jóhannessyni, Mikael Kaaber og Viktoríu Dalitso Þráinsdóttur, auk hinnar 13 ára Rebekku Lív Biraghi sem mun fara með burðarhlutverk. „Það kom ekkert annað til greina,” segir María um það val að fá svo unga leikkonu í hópinn, „það er afar krefjandi fyrir Rebekku, en líka mjög spennandi.”

„Það er mikill sjarmi yfir þessum áratug bæði hvað varðar tísku og tónlist, en það er töluverð eighties tónlist í verkinu. Ég er mjög spennt að sjá hvernig sagan mun skila sér á stóru sviði. Stóra sviðið gefur líka annarskonar möguleika á myndrænum útfærslum sem ég hlakka mikið til að vinna með frábærum listrænum stjórnendum.” Segir María Reyndal, en sagan hefur verið lengi í bígerð. „Ég held að ég hafi í raun vitað mjög lengi að ég myndi skrifa þessa sögu, eiginlega , skrítið að segja frá því, frá því ég var sjálf barn og unglingur. Kannski ekki alveg meðvitað en ómeðvitað.”

Heim

Listabraut 3
103 Reykjavík
Kt. 420269-6849
Miðasala: 568 8000
midasala@borgarleikhus.is
Skrifstofa: 568 5500

Fyrirspurnir: borgarleikhus@borgarleikhus.is

Jafnlaunavottun 2023-2026
Jafnvægisvog FKA 2025
Framúrskarandi fyrirtaeki 2025

Miðasalan er opin 12-17 alla virka daga og 12-20 á sýningardögum.

568 8000

Takk fyrir stuðninginn

Borgarleikhúsið er rekið með sérstökum rekstrarsamningi við Reykjavíkurborg sem gerir okkur kleift að halda áfram að bjóða landsmönnum upp á kraftmikið og skapandi leikhús.

reykjavíkurborg logo
orkusalan logoölgerðin logo