Sara Martí Guð­munds­dótt­ir fast­ráð­in leik­stjóri og list­rænn ráðu­naut­ur

5. maí 2026

Sara Martí Guðmundsdóttir hefur hafið störf sem fastráðinn leikstjóri og listrænn ráðunautur hjá Borgarleikhúsinu. Í starfi sínu mun Sara fylgja eftir leiksýningum hússins sem aðstoðarleikstjóri og/eða listrænn ráðunautur. Jafnframt situr hún í verkefnavalsnefnd sem leggur listræna stefnu leikhússins og fylgir eftir framleiðslu leiksýninga. Sara mun þar að auki leikstýra einni leiksýningu á hverju leikári.

Sara hóf feril sinn í tónlist áður en hún sneri sér að leiklist. Hún stundaði leikaranám við Listaháskóla Íslands og steig sín fyrstu skref á stóra sviði Borgarleikhússins í uppfærslunni Fólkið í blokkinni.

Sara lærði leikstjórn við The Royal Central School of Speech and Drama í London og er með meistaragráðu í menningarstjórnun. Hún hefur margra ára reynslu sem sjálfstætt starfandi leikstjóri og hefur unnið að fjölbreyttum verkefnum á sviði sviðslista.

Árið 2022 tók Sara við starfi leikhússtjóra Tjarnarbíós, þar sem hún lagði áherslu á metnaðarfulla dagskrá, nýsköpun og að skapa vettvang fyrir ólíkar raddir innan sviðslistanna.

Heim

Listabraut 3
103 Reykjavík
Kt. 420269-6849
Miðasala: 568 8000
midasala@borgarleikhus.is
Skrifstofa: 568 5500

Fyrirspurnir: borgarleikhus@borgarleikhus.is

Jafnlaunavottun 2023-2026
Jafnvægisvog FKA 2025
Framúrskarandi fyrirtaeki 2025

Miðasalan er lokuð vegna sumarleyfa til miðvikudagsins 19. ágúst

568 8000

Takk fyrir stuðninginn

Borgarleikhúsið er rekið með sérstökum rekstrarsamningi við Reykjavíkurborg sem gerir okkur kleift að halda áfram að bjóða landsmönnum upp á kraftmikið og skapandi leikhús.

reykjavíkurborg logo
orkusalan logoölgerðin logo