Sex­tán til­nefn­ing­ar til Grím­unn­ar 2026

18. maí 2026

Sýningar Borgarleikhússins hlutu alls fimmtán Grímutilnefningar í ár. Flestar tilnefningar fékk Galdrakarlinn í Oz, sem hlaut sex — þar á meðal sem barnasýning ársins. Við erum einnig afar stolt af því að barna- og ungmennastarf Borgarleikhússins var tilnefnt til Hvatningarverðlauna valnefndar.

„Í öllu barna- og ungmennastarfi Borgarleikhússins er markvisst unnið eftir Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Starfið er afar fjölbreytt og í stöðugri þróun. Það nær meðal annars til fjölmenns leiklistarskóla, barnaþings og mikilvægs starfs með flóttabörnum og hinsegin ungmennum. Árlega er boðið upp á þrjár ókeypis leiksýningar fyrir ólíka aldurshópa skólabarna. Verkfærakista leiklistarinnar er þannig nýtt af miklum metnaði til þroska og valdeflingar nýrra kynslóða,“ segir í umsögn valnefndar.

Við óskum öllum tilnefndum innilega til hamingju.

Galdrakarlinn í Oz

Barnasýning ársins

Búningar ársins - Júlíanna Lára Steingrímsdóttir

Leikmynd ársins - Eva Signý Berger

Lýsing ársins - Gunnar Hildimar Halldórsson

Leikkona í aukahlutverki - Sólveig Arnarsdóttir

Leikari í aukahlutverki - Hilmir Jensson

Hamlet

Leikstjóri ársins - Kolfinna Nikulásdóttir

Dans- og sviðshreyfingar ársins - Ernesto Camilo Valdes og Kolfinna Nikulásdóttir

Leikkona í aukahlutverki - Berglind Alda Ástþórsdóttir

Moulin Rouge! söngleikurinn

Leikari í aukahlutverki - Björn Stefánsson

Skammarþríhyrningurinn

Leikstjóri ársins - Gréta Kristín Ómarsdóttir

Leikari í aðalhlutverki - Árni Pétur Guðjónsson

Leikari í aukahlutverki - Fannar Arnarsson

Niflungahringurinn allur

Búningar ársins - Þórunn María Jónsdóttir

Heim

Listabraut 3
103 Reykjavík
Kt. 420269-6849
Miðasala: 568 8000
midasala@borgarleikhus.is
Skrifstofa: 568 5500

Fyrirspurnir: borgarleikhus@borgarleikhus.is

Jafnlaunavottun 2023-2026
Jafnvægisvog FKA 2025
Framúrskarandi fyrirtaeki 2025

Miðasalan er lokuð vegna sumarleyfa til miðvikudagsins 19. ágúst

568 8000

Takk fyrir stuðninginn

Borgarleikhúsið er rekið með sérstökum rekstrarsamningi við Reykjavíkurborg sem gerir okkur kleift að halda áfram að bjóða landsmönnum upp á kraftmikið og skapandi leikhús.

reykjavíkurborg logo
orkusalan logoölgerðin logo