Sig­urð­ur Karls­son leik­ari er átt­ræð­ur í dag

25. mars 2026

Sigurður nam leiklist í leiklistarskóla Leikfélags Reykjavíkur og útskrifaðist þaðan 1965 og starfaði mestan sinn leikaraferil hjá LR. Sem nemendi í leiklistarskóla félagsins kom hann fram í sýningum á borð við Almansor konungsson og Sú gamla kemur í heimsókn, en fyrsta hlutverk hans hjá Leikfélaginu eftir útskrift var Longintes í barnaleikritinu Grámann í desember 1965. Sigurður lék hátt í hundrað hlutverk hjá Leikfélagi Reykjavíkur á ferlinum og var fastráðinn leikari við LR nær samfellt frá árinu 1974. Meðal hlutverk hans má nefna Sigga í Saumastofu Kjartans Ragnarssonar (1975), Karl Sigurkarlsson í Æskuvinum Svövu Jakobsdóttur (1976), Gunnar í Degi vonar eftir Birgi Sigurðsson (1987), Höfuðsmanninn í Föðurnum eftir Strindberg (1987) og Kládíus í Hamlet (1988). Síðasta hlutverk Sigurðar hjá LR var Dvoétotsje í Sumargestum Maxím Gorkí árið 2002.

Sigurður hefur gegnt ýmsum trúnaðarstörfum á sviði leiklistar og var m.a. formaður stjórnar Leikfélags Reykjavíkur 1986-1992, á þeim tíma sem Leikfélagið flutti úr Iðnó í Borgarleikhúsið, og aftur 1996-1998. Að loknum 40 ára ferli sem leikari lagði Sigurður stund á nám í finnsku og hefur á undanförnum árum þýtt fjölda skáldsagna úr finnsku auk leikritanna Finnski hesturinn eftir Sirkku Peltola og Hreinsun eftir Sofi Oksanen, sem bæði voru sýnd í Þjóðleikhúsinu.

Leikfélag Reykjavíkur óskar Sigurði innilega til hamingju með stórafmælið!

Heim

Listabraut 3
103 Reykjavík
Kt. 420269-6849
Miðasala: 568 8000
midasala@borgarleikhus.is
Skrifstofa: 568 5500

Fyrirspurnir: borgarleikhus@borgarleikhus.is

Jafnlaunavottun 2023-2026
Jafnvægisvog FKA 2025
Framúrskarandi fyrirtaeki 2025

Miðasalan er lokuð vegna sumarleyfa til miðvikudagsins 19. ágúst

568 8000

Takk fyrir stuðninginn

Borgarleikhúsið er rekið með sérstökum rekstrarsamningi við Reykjavíkurborg sem gerir okkur kleift að halda áfram að bjóða landsmönnum upp á kraftmikið og skapandi leikhús.

reykjavíkurborg logo
orkusalan logoölgerðin logo