Síðustu vikur höfum við tekið á móti tæplega 1500 börnum úr fimmta bekk í grunnskólum Reykjavíkurborgar á sýninguna Kjarval – undurfagurt og skemmtilegt verk um þennan dáða listamann.
Við höfum boðið upp á skólasýningar frá leikárinu 2013–2014, og undanfarin ár hefur Kjarval verið sú sýning sem fimmtu bekkingum er boðið að koma á. Leikárið 2025–2026 fara Íris Tanja Flygenring og Haraldur Ari Stefánsson með hlutverk í verkinu.
Síðasti hópurinn á þessu leikári var frá Klettaskóla, og þau komu á afslappaða sýningu.
Á afslöppuðum sýningum eru ljós í áhorfendasal dempuð í stað þess að vera slökkt, dyr eru opnar á meðan sýning stendur og í forsal er boðið upp á skynrými – afdrep þar sem hægt er að fá hvíld frá áreiti.
Við í Borgarleikhúsinu erum stolt og glöð yfir því að geta boðið svona mörgum grunnskólabörnum að upplifa töfra leikhússins.