Skrán­ing á sum­ar­nám­skeið Leik­list­ar­skól­ans hefst 4. maí!

13. apríl 2026

Skráning á sumarnámskeið Leiklistarskóla Borgarleikhússins hefst mánudaginn 4. maí kl. 13:00!

Borgarleikhússins býður upp á spennandi og metnaðarfull sumarnámskeið í júní og júlí fyrir börn og unglinga á aldrinum 8-16 ára. Hvert námskeið er ein vika (fimm dagar í senn), fjórir tímar á dag og endar með uppskerusýningu á Litla sviði Borgarleikhússins. Námskeiðin eru kennd í æfingasal leikhússins en á góðviðrisdögum verður einnig farið út.


Námskeiðslýsingar:


Leiklistarnámskeið

Skapandi leiklistarnámskeið þar sem unnið verður með leikgleði, spuna og sjálfstraust. Á námskeiðinu verður jafnframt lögð áhersla á persónusköpun, leiktúlkun, líkams- og raddbeitingu. Námskeiðið hentar öllum, byrjendum jafnt þeim sem hafa einhverja reynslu af leiklist. Einnig er í boði framhaldshópur sem er ætlaður þeim sem hafa æft leiklist í að lágmarki eitt ár.


Söngleikjanámskeið

Metnaðarfullt söngleikjanámskeið þar sem leiklist, dansi og söng er blandað saman á skemmtilegan hátt. Hver dagur skiptist upp í fjölbreytta dagskrá; nemendur sækja leiklistartíma þar sem áhersla er lögð á leikgleði og spuna, danstíma þar sem kenndur er söngleikjadans og söngtíma sem byggist á Complete Vocal Technique, sem er alhliða radd- og söngtækni. Í söngtímum verður nemendum skipt upp í smærri hópa. Námskeiðið hentar öllum, bæði byrjendum og lengra komnum.

Inntökukröfur í framhaldshópinn eru þær að nemandi uppfylli að lágmarki eina af eftirfarandi kröfum:

  • Nemandi hefur að lágmarki lokið 1.stigi í Leiklistarskóla Borgarleikhússins
  • Nemandi hefur stundað leiklist í öðrum leiklistarskólum samfleytt síðustu þrjú ár
  • Nemandi hefur leikið krefjandi hlutverk á sviði í atvinnuleikhúsi á s.l. þremur árum.

Yfirlit yfir sumarnámskeið 2026

Vika 1 - 15.-19.júní:

Leiklistarnámskeið kl. 08:30-12:30

Verð: 30.800 kr.- (4 daga námskeið)

Aldurshópar:

  1. 2016-2017
  2. 2014-2015
  3. Unglingahópur 2011-2013

Vika 2 - 22.-26.júní:

Leiklistarnámskeið kl. 08:30-12:30

Verð: 38.500 kr.-

Aldurshópar:

  1. 2016-2017
  2. 2014-2015
  3. Unglingahópur 2011-2013

Vika 1 og 2 - 15.-26.júní:

FRAMHALDSHÓPUR - Leiklistarnámskeið kl.13:00-17:00 (9.dagar)

Verð: 69.300 kr.- (9 daga námskeið)

Aldurshópar: 2009-2015

Inntökukröfur í framhaldshópinn eru þær að nemandi uppfylli að lágmarki eina af eftirfarandi kröfum:

  • Nemandi hefur að lágmarki lokið 1.stigi í Leiklistarskóla Borgarleikhússins
  • Nemandi hefur stundað leiklist í öðrum leiklistarskólum samfleytt síðustu þrjú ár
  • Nemandi hefur leikið krefjandi hlutverk á sviði í atvinnuleikhúsi á s.l. þremur árum.

Vika 3 - 29.júní-3.júlí:

Leiklistarnámskeið kl. 08:30-12:30

Verð: 38.500 kr.-

Aldurshópar:

  1. 2017-2018
  2. 2015-2016
  3. 2013-2014

Söngleikjanámskeið kl. 13:00-17:00

Verð: 41.000 kr.-

Aldurshópar:

  1. 2016-2017
  2. 2014-2015
  3. Unglingahópur 2011-2013

Vika 4 - 6.-10.júlí:

Leiklistarnámskeið kl. 08:30-12:30

Verð: 38.500 kr.-

Aldurshópar:

  1. 2017-2018
  2. 2015-2016
  3. 2013-2014

Söngleikjanámskeið kl. 13:00-17:00

Verð: 41.000 kr.-

Aldurshópar:

  1. 2016-2017
  2. 2014-2015
  3. Unglingahópur 2011-2013

Vika 5 - 13.-17.júlí:

Leiklistarnámskeið kl. 08:30-12:30

Verð: 38.500 kr.-

Aldurshópar:

  1. 2017-2018
  2. 2015-2016
  3. 2013-2014

Leiklistarnámskeið kl. 13:00-17:00

Verð: 38.500 kr.-

Aldurshópar:

  1. 2017-2018
  2. 2015-2016
  3. 2013-2014

Vika 6 - 20.-24.júlí:

Leiklistarnámskeið kl. 08:30-12:30

Verð: 38.500 kr.-

Aldurshópar:

  1. 2017-2018
  2. 2015-2016
  3. 2013-2014

Söngleikjanámskeið kl. 13:00-17:00

Verð: 41.000 kr.-

Aldurshópar:

  1. 2016-2017
  2. 2014-2015
  3. 2012-2013
Heim

Listabraut 3
103 Reykjavík
Kt. 420269-6849
Miðasala: 568 8000
midasala@borgarleikhus.is
Skrifstofa: 568 5500

Fyrirspurnir: borgarleikhus@borgarleikhus.is

Jafnlaunavottun 2023-2026
Jafnvægisvog FKA 2025
Framúrskarandi fyrirtaeki 2025

Miðasalan er lokuð vegna sumarleyfa til miðvikudagsins 19. ágúst

568 8000

Takk fyrir stuðninginn

Borgarleikhúsið er rekið með sérstökum rekstrarsamningi við Reykjavíkurborg sem gerir okkur kleift að halda áfram að bjóða landsmönnum upp á kraftmikið og skapandi leikhús.

reykjavíkurborg logo
orkusalan logoölgerðin logo