Stella í or­lofi á leið á Stóra svið­ið!

16. október 2026

Ein goðsagnakenndasta saga íslenskrar kvikmyndasögu, Stella í orlofi, verður sviðsett á Stóra sviðinu á næsta leikári, í leikstjórn Brynhildar Guðjónsdóttur. Brynhildur skrifar jafnframt leikgerð sýningarinnar, ásamt Halldóri Laxness Halldórssyni (Dóra DNA). Verður sýningin byggð á samnefndu kvikmyndahandriti Guðnýjar Halldórsdóttur, með tónlist eftir Valgeir Guðjónsson.

Halldór Laxness Halldórsson, Guðný Halldórsdóttir, Brynhildur Guðjónsdóttir og Halldór Þorgeirsson

Halldór Laxness Halldórsson, Guðný Halldórsdóttir, Brynhildur Guðjónsdóttir og Halldór Þorgeirsson

Stella í orlofi
er fertug í dag, en hún var frumsýnd í kvikmyndahúsum þann 18. október 1986 og er enn í dag ein ástsælasta íslenska gamanmynd allra tíma. Edda Björgvinsdóttir fór eftirminnilega með hlutverk Stellu Löve, lífsglöðu húsmóðurinnar sem tekur til sinna ráða þegar Georg, eiginmaður hennar, lendir á spítala og kemst ekki í veiðiferð sem stóð til með erlendum viðskiptavin. Stella ákveður að fara í stað Georgs og hefst þá óborganleg atburðarás sem öll er byggð á misskilningi. Við sögu kemur danskt viðhald Georgs, Lionsklúbburinn Kiddi, drykkfelldi Svíinn Salomon, flugmenn á frívakt, fljúgandi grill og jeppadekk. Með aðalhlutverk í Stellu í orlofi fóru einnig Gestur Einar Jónasson og Þórhallur Sigurðsson (Laddi).

Brynhildur og Valgeir Guðjónsson

Brynhildur og Valgeir Guðjónsson

Það má gera ráð fyrir að sviðsetning Borgarleikhússins á Stellu í orlofi muni kveikja á nostalgíunni og fara með leikhúsgesti aftur til ársins 1986.

„Stella í orlofi er fullkomin blanda af galsa og trega, sameign okkar allra og hápunktur tímabils þegar bjór var bannaður og allir drukku sterkt, leiðtogafundur stórvelda var haldinn í Höfða, Hófí var fallegust, Jón Páll var sterkastur, Reynir Pétur labbaði í kringum landið og allir fengu köku í 200 ára afmæli Reykjavíkurborgar. Og hugsiði ykkur, við lifðum þetta af!" segir Brynhildur um þetta tímabil sem mun endurfæðast á Stóra sviðinu á næsta leikári.

„Það verður sannarlega áskorun að koma hinu frábæra kvikmyndahandriti Guðnýjar Halldórsdóttur á svið, fanga það besta úr kvikmyndinni sem heillaði þjóðina og kitlaði hláturtaugar svo um munaði - eitursnjöll flétta, frábærlega leikstýrt af Þórhildi Þorleifsdóttur, snilldarlega leikin af óaðfinnanlegu kasti, hver rammi myndrænt listaverk, bilaðslega flott litapalletta og tónlist Valgeirs Guðjónssonar sem fullkomnar verkið," bætir Brynhildur við.

„Stella í orlofi er óður til móður, upphafning dugmikillar og drífandi konu, hinnar stórfenglegu Stellu Löve - sem er föst í gleðiharmleik lífsins. Hún er fjallkonan sem fattar að hún þarf bara að gera allt sjálf. Kona sem, með sína sólgulu sjálfsbjargarviðleitni, keyrir í gegnum nútímalífið sem krefst svo mikils af mönnunum: heimilið og börnin og fyllerí og framhjáhald eiginmannsins. Hún á svo sannarlega skilið að fara í frí hún Stella,"

Leikmyndahönnuðurinn Eva Signý Berger og búningahönnuðurinn Júlíanna Steingrímsdóttir munu skapa umgjörðina og er undirbúningur nú þegar hafinn. Danshöfundur er Valgerður Rúnarsdóttir. Afhjúpað verður á næstu vikum hver mun fara með hlutverk Stellu Löve og Salomons.

Heim

Listabraut 3
103 Reykjavík
Kt. 420269-6849
Miðasala: 568 8000
midasala@borgarleikhus.is
Skrifstofa: 568 5500

Fyrirspurnir: borgarleikhus@borgarleikhus.is

Jafnlaunavottun 2023-2026
Jafnvægisvog FKA 2025
Framúrskarandi fyrirtaeki 2025

Miðasalan er opin 12-17 alla virka daga og 12-20 á sýningardögum.

568 8000

Takk fyrir stuðninginn

Borgarleikhúsið er rekið með sérstökum rekstrarsamningi við Reykjavíkurborg sem gerir okkur kleift að halda áfram að bjóða landsmönnum upp á kraftmikið og skapandi leikhús.

reykjavíkurborg logo
orkusalan logoölgerðin logo