Svika­sög­ur frum­sýnd­ar

18. september 2026

Svikasögur frumsýning 19. septemeber

Svikasögur, glænýtt verk eftir Maríu Reyndal, verður frumsýnt á Stóra sviði Borgarleikhússins laugardaginn 19. september kl. 20.

Svikasögur er nýtt íslenskt verk eftir Maríu Reyndal, sem jafnframt leikstýrir sýningunni. Verkið er það þriðja sem hún setur upp í Borgarleikhúsinu en áður hefur hún sett upp Er ég mamma mín? og Með Guð í vasanum.

Í þessum verkum hefur María unnið með fjölskylduna, náin tengsl og því sem gerist þegar eitthvað fer úr skorðum. Í Svikasögum beinir hún sjónum að hjónaskilnaði og rofi í kjarnafjölskyldunni og segir söguna með húmor og hlýju.

Í Svikasögum gefur María áhorfendum innsýn í líf unglingsstúlku á níunda áratugnum. Inn í fjölskyldusöguna fléttast ættboginn allur, besta vinkonan í næsta húsi, rottugangur, túrbankellingar, óperusöngur og níundi áratugurinn í allri sinni dýrð.

María leiðir saman öflugan leikhóp í Svikasögum: Berglindi Öldu Ástþórsdóttur, Rebeccu Lív Biraghi, Viktoríu Dalitso Þráinsdóttur, Birnu Pétursdóttur, Hákon Jóhannesson, Mikael Kaaber, Kötlu Margréti Þorgeirsdóttur og Vilhelm Neto.

María er einnig þekkt fyrir störf sín á skjánum. Hún er einn höfunda gamanþáttanna Stelpnanna, skrifaði og leikstýrði Mannasiðum, var einn handritshöfunda Ástríðar og einn leikstjóra Verbúðarinnar.

Heim

Listabraut 3
103 Reykjavík
Kt. 420269-6849
Miðasala: 568 8000
midasala@borgarleikhus.is
Skrifstofa: 568 5500

Fyrirspurnir: borgarleikhus@borgarleikhus.is

Jafnlaunavottun 2023-2026
Jafnvægisvog FKA 2025
Framúrskarandi fyrirtaeki 2025

Miðasalan er opin 12-17 alla virka daga og 12-20 á sýningardögum.

568 8000

Takk fyrir stuðninginn

Borgarleikhúsið er rekið með sérstökum rekstrarsamningi við Reykjavíkurborg sem gerir okkur kleift að halda áfram að bjóða landsmönnum upp á kraftmikið og skapandi leikhús.

reykjavíkurborg logo
orkusalan logoölgerðin logo