Það var mikið um dýrðir í Borgarleikhúsinu þann 10. júní síðastliðinn, þegar Grímuverðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn. Borgarleikhúsið fékk langflest verðlaun eða níu talsins auk þess sem Kammeróperan í samstarfi við Borgarleikhúsið fékk ein. Við erum ótrúlega stolt af listafólkinu okkar og óskum öllum verðlaunahöfum og þeim sem fengu tilnefningar innilega til hamingju með glæsilegan árangur. Hér má sjá lista yfir þau sem hlutu verðlaun:
Leikkona í aðalhlutverki
Birna Pétursdóttir
Ungfrú Ísland
Leikari í aukahlutverki
Hákon Jóhannesson
Sýslumaður dauðans
Leikkona í aukahlutverki
Katla Margrét Þorgeirsdóttir
Köttur á heitu blikkþaki
Leikrit ársins
Sýslumaður dauðans
eftir Birni Jón Sigurðsson
Leikstjóri ársins
Þorleifur Arnarsson
Köttur á heitu blikkþaki
Búningar ársins
Filippía I. Elísdóttir
Ungfrú Ísland
Leikmynd ársins
Axel Hallkell Jóhannesson
Fjallabak
Dans- og sviðshreyfingar ársins
Cameron Corbett
Ungfrú Ísland
Söngkona ársins
Bryndís Guðjónsdóttir
Brúðkaup Fígarós