Þor­leif­ur Örn leik­stýr­ir Hilmi Snæ í Und­ir­djúp­un­um

24. júní 2026

Hilmir Snær Guðnason mun fara með burðarhlutverkið í Undirdjúpunum – nístandi, fyndnum og óvægnum einleik byggðum á einu áhrifamesta verki Fjodors Dostojevskís. Verkið verður sett upp á Litla sviði Borgarleikhússins á komandi leikári.

Í leikstjórn Þorleifs Arnar Arnarssonar verður sagan að magnþrunginni sýningu um mann sem stendur einn gegn öllum - en þó aðallega sjálfum sér. Í Undirdjúpunum takast á stolt og skömm, þráin eftir nálægð og löngunin til að brjótast undan reglum skynseminnar.

Leikmynd og búninga hannar Jósef Halldórsson og þýðandi er Maríanna Clara Lúthersdóttir.

Undirdjúpin verða frumsýnd á Litla sviði Borgarleikhússins í febrúar 2027. Mega leikhúsgestir eiga von á sýningu sem lifir áfram löngu eftir að tjaldið fellur.

Heim

Listabraut 3
103 Reykjavík
Kt. 420269-6849
Miðasala: 568 8000
midasala@borgarleikhus.is
Skrifstofa: 568 5500

Fyrirspurnir: borgarleikhus@borgarleikhus.is

Jafnlaunavottun 2023-2026
Jafnvægisvog FKA 2025
Framúrskarandi fyrirtaeki 2025

Miðasalan er lokuð vegna sumarleyfa til miðvikudagsins 19. ágúst

568 8000

Takk fyrir stuðninginn

Borgarleikhúsið er rekið með sérstökum rekstrarsamningi við Reykjavíkurborg sem gerir okkur kleift að halda áfram að bjóða landsmönnum upp á kraftmikið og skapandi leikhús.

reykjavíkurborg logo
orkusalan logoölgerðin logo