Um­sókn­ar­frest­ur í Leik­list­ar­skóla Borg­ar­leik­húss­ins renn­ur út 12. ág­úst

10. ágúst 2026

Við minnum á að opið er fyrir skráningar í inntökuprufur fyrir Leiklistarskóla Borgarleikhússins fyrir haustið 2026. Prufurnar fara fram í Borgarleikhúsinu dagana 20.-24. ágúst 2026 og er umsóknarfrestur til og með 12. ágúst. Skólinn býður upp á einstakt þriggja ára leiklistarnám fyrir börn á grunnskólaaldri og er námið spennandi valkostur fyrir þau sem hafa áhuga á leiklist. Börn fædd á árunum 2013-2016, það er börnum sem hefja nám í 5.-8. bekk haustið 2026 geta nú farið inn síðu Leiklistarskólans og sent inn umsókn.

Prufurnar eru líflegar og skemmtilegar og fara fram í tveimur umferðum. Í fyrri umferð taka umsækjendur þátt í leiklistaræfingum og leikjum undir leiðsögn kennara og inntökunefndar. Ekki þarf að undirbúa neitt sérstakt fyrir prufuna, heldur er lögð áhersla á að umsækjendur mæti með opinn hug og sýni áhuga, vilja og frumkvæði. Í seinni umferð er skorið niður úr fyrsta hópnum en halda leiklistaræfingarnar áfram en auk þess fara umsækjendur í stutt einstaklingsviðtal hjá valnefndinni. Að prufunum loknum fer nefndin yfir niðurstöðurnar og verða svör send út með tölvupósti.

Haustið 2026 verða svo 32 nýir nemendur teknir inn í skólann. Við val á nemendum er fyrst og fremst horft til áhuga, vilja og getu, en einnig geta þættir á borð við fyrri reynslu, aldur og þroska, samsetningu hóps og fjölbreytileika nemendahópsins haft áhrif. Leiklistarskóli Borgarleikhússins starfar í samræmi við stefnu Borgarleikhússins um jafnrétti og fjölbreytileika og hvetur börn af öllum kynjum, ólíkum uppruna og með ólíkar aðgengisþarfir til að sækja um námið.


Heim

Listabraut 3
103 Reykjavík
Kt. 420269-6849
Miðasala: 568 8000
midasala@borgarleikhus.is
Skrifstofa: 568 5500

Fyrirspurnir: borgarleikhus@borgarleikhus.is

Jafnlaunavottun 2023-2026
Jafnvægisvog FKA 2025
Framúrskarandi fyrirtaeki 2025

Miðasalan er opin 12-17 alla virka daga og 12-20 á sýningardögum.

568 8000

Takk fyrir stuðninginn

Borgarleikhúsið er rekið með sérstökum rekstrarsamningi við Reykjavíkurborg sem gerir okkur kleift að halda áfram að bjóða landsmönnum upp á kraftmikið og skapandi leikhús.

reykjavíkurborg logo
orkusalan logoölgerðin logo