Verð­launa­leik­rit­ið Sýslu­mað­ur dauð­ans er kom­ið út á bók

19. júní 2025

Birnir Jón Sigurðsson starfaði sem leikskáld Borgarleikhússins á leikárinu 2024-2025. Á þeim tíma skrifaði hann Sýslumann dauðans, sem var valið leikrit ársins á Grímuverðlaununum þann 10. júní síðastliðinn. Hákon Jóhannesson hlaut einnig Grímuverðlaunin sem leikari í aukahlutverki fyrir hlutverk sitt í sýningunni.

Sýslumaður dauðans hlaut alls sjö tilnefningar til Grímuverðlaunanna í ár; sem sýning ársins, Stefán Jónsson var tilnefndur sem leikstjóri ársins, Birna Pétursdóttir sem leikkona ársins í aukahlutverki, Mirek Kaczmarek hlaut tilnefningu fyrir leikmynd verksins, sem og fyrir lýsingu ásamt Jóhanni Friðriki Ágústssyni.

Leikritunarsjóður Leikfélags Reykjavíkur var stofnaður árið 2007 og hafa síðan þá hafa tólf starfað sem leikskáld Borgarleikhússins og við erum afskaplega stolt af þeim hópi sem hér hefur starfað. Má nefna að í fyrra hlaut Matthías Tryggvi Haraldsson, fyrrum leikskáld hússins, einnig Grímuverðlaun fyrir leikrit ársins - fyrir verk sitt Síðustu dagar Sæunnar.

Það gleður okkur að sjá þennan afrakstur vinnu leikskálds Borgarleikhússins og að ung leikskáld uppskeri verðskuldaða viðurkenningu. Þessar viðurkenningar minna okkur á mikilvægi þess að gefa höfundum tíma og rými til að skrifa – ekkert verður til úr engu – og ef við Íslendingar eigum að geta speglað okkur sjálf, okkar samtíma, á sviðinu – þá verðum við líka að leyfa röddum þeirra að hljóma.

Við óskum Birni Jóni Sigurðssyni innilega til hamingju.

Hér er hægt að tryggja sér eintak af Sýslumanni dauðans.

Heim

Listabraut 3

103 Reykjavík

Kt. 420269-6849

Miðasala: 568 8000

midasala@borgarleikhus.is
Skrifstofa: 568 5500

Fyrirspurnir: borgarleikhus@borgarleikhus.is

Miðasalan er opin 12-17 alla virka daga og 12-20 á sýningardögum. 568 8000
jafnlaunavottun 2023-2026

Takk fyrir stuðninginn

Borgarleikhúsið er rekið með sérstökum rekstrarsamningi við Reykjavíkurborg sem gerir okkur kleift að halda áfram að bjóða landsmönnum upp á kraftmikið og skapandi leikhús.

reykjavíkurborg logo
orkusalan logoölgerðin logo