Borgarleikhúsið

Eitruð lítil pilla

Rokksöngleikur Alanis Morissette

19 maí 2023

Borgarleikhúsið hefur tryggt sér sýningarrétt á rokksöngleiknum Eitruð lítil pilla eftir Alanis Morrissette og Diablo Cody.


Söngleikurinn Eitruð lítil pilla byggir á tónlist af plötu Alanis Morrissette, Jagged Little Pill, einni áhrifamestu plötu tíunda áratugarins. Platan seldist í tugmilljónum eintaka þegar hún kom út árið 1995 og er meðal söluhæstu hljómplatna allra tíma. Hún hlaut fimm Grammy-verðlaun og gerði hina 21 árs gömlu Alanis að alþjóðlegri stórstjörnu á einni nóttu. Tónlist Alanis einkenndist af óbeisluðum krafti og hráum og hnitmiðuðum textum. Lög á borð við „You Oughta Know“, „You Learn“ og „Ironic“ eru ótvírætt meðal helstu einkennislaga tíunda áratugarins.

Söngleikur byggður á tónlist Alanis var frumsýndur á Broadway í lok árs 2019 og sló rækilega í gegn þrátt fyrir Covid-hindranir. Hann hlaut fimmtán tilnefningar til Tony-verðlaunanna og hreppti meðal annars verðlaunin fyrir besta handritið, en höfundur þess, Diablo Cody, er sennilega þekktust sem handritshöfundur kvikmynda á borð við Juno (2007), Young Adult (2011) og Tully (2018).

Eitruð lítil pilla segir frá Healy-fjölskyldunni; hjónunum Mary Jane og Steve og börnum þeirra Nick og Frankie. Það er allt í himnalagi hjá Mary Jane. Eiginmaðurinn Steve er í góðri stöðu, sonurinn Nick var að komast inn í Harvard og dóttirin Frankie… tja… hún er svo skapandi og lífleg. Steve vinnur reyndar 60 tíma á viku, Nick er að bugast undan væntingunum sem til hans eru gerðar og Frankie reynir að fóta sig sem ættleidda tvíkynhneigða dóttir úthverfadrottningarinnar. En Mary Jane er í lagi. Þessar nokkru Oxycontin töflur á dag eru bara til að slá rétt aðeins á sársaukann eftir bílslysið í fyrra. Smátt og smátt er farið að kvarnast upp úr fallegu fjölskyldumyndinni sem Mary Jane sendir með jólakortinu á hverju ári og áður en yfir lýkur þarf öll fjölskyldan að horfast í augu við óþægilegar staðreyndir - óþægilegar staðreyndir sem eru kannski grundvöllur lífsins þegar betur er að gáð.

Stórstjarnan Jóhanna Vigdís Arnardóttir snýr aftur í Borgarleikhúsið í hlutverki Mary Jane, eiginmanninn Steve leikur Valur Freyr Einarsson og stjörnum prýddan leikhópinn fylla meðal annars Aldís Amah Hamilton, Íris Tanja Flygenring, Sigurður Ingvarsson, Haraldur Ari Stefánsson og Elín Sif Hall.

Leikstjóri: Álfrún Helga Örnólfsdóttir
Þýðendur: Matthías Tryggvi Haraldsson og Ingólfur Eiríksson
Danshöfundur: Saga Sigurðardóttir
Tónlistarstjóri: Karl Olgeirsson
Leikmynd: Eva Signý Berger
Búningar: Karen Briem
Lýsing: Pálmi Jónsson
Hljóð: Kristinn Gauti Einarsson

Jóhann Vigdís Arnardóttir (Mary Jane), Valur Freyr Einarsson (Steve), Aldís Amah Hamilton (Frankie), Sigurður Ingvarsson (Nick), Íris Tanja Flygenring (Jo), Haraldur Ari Stefánsson (Phoenix), Rán Ragnarsdóttir (Bella), Sölvi Dýrfjörð (Andrew), Rakel Ýr Stefánsdóttir (Lily), Hákon Jóhannesson (Charlie), Esther Talía Casey, Birna Pétursdóttir, Hannes Þór Egilsson, Védís Kjartansdóttir og Marinó Máni Mabazza.

Frumsýning 23. febrúar 2024 á Stóra sviði Borgarleikhússins.