Krakkaþing Fíusólar
Meira nammi – minni fisk!
Halló öll! Hér kemur áríðandi tilkynning og áríðandi tilfinning!! Krakkar taka yfir Stóra sviðið í Borgarleikhúsinu! Opin dagskrá föstudaginn 26. apríl kl. 17:00 þar sem krakkarnir í Fíusól sýna atriði úr sýningunni og kynna niðurstöður Krakkaþingsins sem haldið verður fyrr um daginn. Í lok dagskrár verður öllum börnum boðið upp á svið til að taka undir í Baráttusöng barna – FYLLUM STÓRA SVIÐIÐ AF BÖRNUM! Endalaust fjör og endalaust stuð og ókeypis inn! Foreldrar velkomnir líka ...
Þegar
Borgarleikhúsið ákvað að taka til sýninga verkið Fíasól gefst aldrei upp
var óhjákvæmilegt að kynna sér nánar Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna en
hann var höfundi bókanna um Fíusól, Kristínu Helgu Gunnarsdóttur, hugleikin við
ritun bókanna. Leikhúsið fór því í samvinnu við UNICEF og haldið var þing með
öllum börnunum sem leika í sýningunni þar sem Barnasáttmálinn var kynntur bæði fyrir
börnunum og starfsfólki hússins. Þingið hafði að leiðarljósi hvernig börnin gætu
haft áhrif á leikhúsið og sýninguna sjálfa en einnig var skoðað hvernig
vinnuaðstæður barna í leikhúsi eru í dag. Í kjölfarið gerði Borgarleikhúsið
ákveðnar verklagsreglur til þess að leikhúsið yrði barnvænn vinnustaður.
Nú vill Borgarleikhúsið bjóða fleiri börnum að borðinu. Krakkaþing Fíusólar er einstakur viðburður sem haldin verður í leikhúsinu föstudaginn 26. apríl. Þann dag munu börn sem vinna í leikhúsi á Íslandi, nemendur í leiklistarskóla Borgarleikhússins auk tveggja barna úr hverjum grunnskóla Reykjavíkur koma saman og svara þremur spurningum:
1.
Hvernig
er að vera barn og vinna í leikhúsi á Íslandi í dag?
2.
Hvernig
finnst börnum að leiklistarnám fyrir börn eigi að vera?
3.
Hvernig
finnst börnum að leikhús á Íslandi eigi að vera?
Að þessu þingi loknu verður Borgarleikhúsið opnað öllum börnum klukkan 17:00. Við hvetjum öll til að koma, með eða án foreldra og hlusta á niðurstöður þingsins auk þess sem ungleikarar úr Fíusól munu sýna atriði úr sýningunni. Í lokin verður öllum börnum boðið að stíga á svið og taka undir Baráttusöng barna – takmarkið er að fylla Stóra svið Borgarleikhússins af krökkum.
Hér er hægt að nálgast miða á opnu dagskrána sem verður föstudaginn 26. apríl á milli kl. 17:00-18:00. Aðgangur ókeypis!