Útskrift Leiklistarskólans
Nýlega útskrifuðust 25 ungleikarar hjá Leiklistarskóla Borgarleikhússins eftir þriggja ára nám við skólann.
Nemendur sýndu frumsamdar útskriftarsýningar sínar á Nýja sviðinu, það voru sýningarnar Sjúllaða sveitasetrið í leikstjórn Birnu Rúnar Eiríksdóttir og Góðar tölvur í leikstjórn Ylfu Aspar Áskelsdóttur. Um leikmynda- og búningahönnun sá Guðný Hrund Sigurðardóttir.
Mikil aðsókn er í námið í Leiklistarskóla Borgarleikhússins en opnað hefur verið fyrir skráningu í inntökuprufur fyrir haustið 2023. Athugið að aðeins er tekið við umsóknum frá börnum fæddum á árunum 2010-2013. Umsóknarfrestur er til og með 10. ágúst. Prufurnar fara fram í Borgarleikhúsinu dagana 21. - 23. ágúst 2023.
Þau sem skráð eru í prufu fá sent boð í tölvupósti með nákvæmri tímasetningu og öllum helstu upplýsingum um prufuna. Skráning í prufurnar fer fram hér.