Litla svið
Svið
Litla svið
Lengd
2.5 klst með hléi
Verð
7.950 kr.
Verkið Skammarþríhyrningurinn gerist í fjarlægri framtíð. Menningarstríðinu er lokið: kynrænt sjálfræði, hinsegin mannréttindi og kvenfrelsi heyra sögunni til. Bakslagið hefur náð endatakmarki sínu.
Í þessum ímyndaða hliðarveruleika við daufari enda regnbogans stendur hópur sérfræðinga fyrir glæstri opnun á sögusafni um hina myrku tíma pólitíska rétttrúnaðarins sem við nú lifum, En verkefni þeirra er afar flókið því bækurnar hafa allar verið brenndar, heimildirnar eru horfnar og mannlegur fjölbreytileiki utan strangrar tvíhyggju hefur verið bannaður og ritskoðaður úr sögunni.
Við fylgjumst með þessum hópi fólks reyna að púsla saman mynd af mannréttindaparadísinni sem eitt sinn var á Íslandi og svara aðkallandi spurningum. Hvað í ósköpunum var Pride? Hvernig bjargaði J.K Rowling kvennaklósettinu frá alþjóðlegum nauðgarasamtökum? Hverskonar te drukku svokallaðar dragdrottningar? Hvar fór innræting barna fram? Hver var þessi Hán?
Upplýsingar um viðkvæmt innihald og áreiti er að finna hér
Að auki bendum við á að sýningin inniheldur trans hugmyndafræði, karl í kjól, pólitískan réttrúnað, hinsegin fræðslu, tölfræði, kommúnisma, kapítalisma, lesbíur, guðlast, listamannalaun, Ríkissjóð, hatursorðræðu- og glæpi, inngildingu, líffræði, rangkynjun, gremjufræði, innflutta orðræðu, fötlunarfordóma, kynjafræði, rasisma, veganisma, fornöfn, nekt, blótsyrði, kynferðislega áreitni, forréttindi, hvít börn, gender gremlensku, hinsegin fordóma, stríð, innrætingu, kyngerð börn, hryðjuverk, nauðgunarmenningu, Bandaríkin, #metoo, nýyrði, regnbogavarning, bleikþvott, dyggðaskreytingar, pólitíska skautun, CPTSD, dýraníð, þungunarrof, kynusla, kynrænt sjálfræði, spítalasögur, falsfréttir, gervifallus, drengjaorðræðu, tvíhyggju, hommavæðingu, samkynja samneyti, TERF, jaðarmenningu, jaðarsetningu, hlutgervingu kvenna, slaufun, ritskoðun, tjáningarfrelsi, kyntjáningarfrelsi, enskuslettur, dönskuslettur, eitraða karlmennska, eitraða kvenlægni og lagið Umvafin englum.
Leikhópurinn Stertabenda var stofnaður 2016 og hefur þróað sérstætt sviðstungumál Camp aðferða og hinsegin fagurfræði þar sem húmor og gáski ráða för í vægðarlausri krufningu á samtímanum. Fyrri verk hópsins eru Stertabenda (2016), Insomnia (2018) og Góðan daginn, faggi (2021).
Verkefnið er styrkt af Sviðlistasjóði og Listamannalaunum.
Framleitt af Stertabendu í samstarfi við MurMur Productions og Borgarleikhúsið
Myndir úr sýningunni
Árni Pétur Guðjónsson
LeikariBjarni Snæbjörnsson
LeikariEmbla Guðrúnar-Ágústsdóttir
LeikariFannar Arnarsson
LeikariSindri Sparkle
LeikariKristrún Kolbrúnardóttir
LeikariLeikhópurinn Stertabenda
Gréta Kristín Ómarsdóttir
Eva Signý Berger
Kristín Ferrell
Egill Andrason
Axel Ingi Árnason og Egill Andrason
Egill Andrason
Ólafur Ágúst Stefánsson
Cameron Corbett
Ray Milano
Davíð Freyr Þórunnarson og Ragnheiður Maísól Sturludóttir
Listabraut 3
103 Reykjavík
Kt. 420269-6849
Miðasala: 568 8000
midasala@borgarleikhus.is
Skrifstofa: 568 5500
Fyrirspurnir: borgarleikhus@borgarleikhus.is
Takk fyrir stuðninginn
Borgarleikhúsið er rekið með sérstökum rekstrarsamningi við Reykjavíkurborg sem gerir okkur kleift að halda áfram að bjóða landsmönnum upp á kraftmikið og skapandi leikhús.