„Ég hata jólakvöld! Ég hata jóladag! Ég hata hvert einasta hátíðarlag!”
Jólahátíðin er tími samveru, söngs… og prakkaraskapar! Allavega hjá Trölla okkar sem er harðákveðinn í að stela jólunum. Eftir að hafa heillað áhorfendur víðs vegar um Bandaríkin um árabil kemur þessi ástsæli og bráðskemmtilegi söngleikur nú til Evrópu í fyrsta sinn og verður frumsýndur á stóra sviði Borgarleikhússins.
Söngleikurinn er byggður á klassískri sögu eftir Dr. Seuss þar sem þorpið Hvervík lifnar við og umbreytist í Jólaþorp í ævintýralegri sviðsmynd, grípandi tónlist og litríkum persónum, þar á meðal aðalpersónu okkar, Trölla – hann er fúll og grænn prakkari sem ætlar sér að eyðileggja jólin… þar til áætlun hans tekur óvænta stefnu í þessari hlýju og heillandi sögu.
Sýningin er fyrir alla sem elska skemmtilegar og hátíðlegar sögur fullar af húmor og gleði. Hér er um að ræða stórsýningu með grípandi lögum, töfrandi sjónrænni upplifun og frábærum leikarahópi, þar sem Björgvin Franz Gíslason fer fremstur í flokki sem Trölli – sýningu sem fangar hinn sanna anda jólanna.
Hvort sem þú þekkir Trölla eða ert að kynnast honum í fyrsta sinn, er þetta einstakt tækifæri til að upplifa þennan heimsklassa söngleik hér í Borgarleikhúsinu. Komdu og láttu hjartað þitt stækka aðeins á þessari hátíðartíð!