Ungfrú Ísland
- Stóra sviðið
- Verð: 7.800
- Væntanleg
Ungfrú Ísland
Verðlaunaskáldsaga Auðar Övu birtist á stóra sviðinu
Verðlaunaskáldsaga Auðar Övu birtist hér ljóslifandi á Stóra sviðinu í mögnuðu sjónarspili. Hekla þráir að skrifa en það reynist fjarlægur draumur fyrir unga konu á Íslandi rétt eftir miðbik síðustu aldar. Draumurinn er enn fjarlægari fyrir Íseyju, sem er gift og komin með barn og eru sjálfkrafa allar bjargir bannaðar. Bara að fá að vera til á eigin forsendum virðist utan seilingar og hið sama upplifir hinn ungi Jón John.
Ungfrú Ísland er kyngimögnuð saga sem gerist á barmi byltinga, fangar tíðaranda og tilfinningar. Þetta er saga um baráttu fólks fyrir höfundarétti á eigin lífi á tímum þegar sjálfstæði kvenna og hinseginleiki voru þyrnar í augum íhaldsams samfélags, barátta sem enn er háð í dag. En þetta er einnig saga um sjálfan sköpunarkraftinn, lífsviljann og ævarandi leit að betri heimi, þar sem allt það sem ekki er orðið til kraumar undir yfirborðinu og brýtur sér leið í ljósið með tilheyrandi titringi og átökum.
Ritsnilld Auðar Övu er landsmönnum að góðu kunn og hér má finna leiftrandi húmor, þungan harm og heillandi fegurð. Leikstjórn er í höndum Grétu Kristínar Ómarsdóttur og leikgerðin er unnin af Bjarna Jónssyni en með helstu hlutverk fara íris Tanja Flygenring, Birna Pétursdóttir, Fannar Arnarsson og Hjörtur Jóhann Jónsson.
Leikarar
- Birna Pétursdóttir
- Ester Talía Casey
- Fannar Arnarsson
- Haraldur Ari Stefánsson
- Hjörtur Jóhann Jónsson
- Íris Tanja Flygenring
- Sólveig Arnarsdóttir
- Valur Freyr Einarsson
- Vilhelm Neto
- Þórunn Arna Kristjánsdóttir
Listrænir stjórnendur
Höfundur
Auður Ava Ólafsdóttir
Leikgerð
Bjarni JónssonLeikstjóri
Gréta Kristín Ómarsdóttir
Leikmynd
Kristinn Arnar Sigurðsson
Búningar
Filippía Elísdóttir
Tónlist
Unnsteinn Manuel Stefánsson
Lýsing
Pálmi Jónsson
Hljóð
Unnsteinn Manuel Stefánsson og Jón Örn Eiríksson
Leikgervi
Elín S. Gísladóttir